Beint í efni
Til baka í fundargerðir

HK - Ósk um félagsmerkingar við Salavöll og í Íþróttahúsi Digranes

Málsnúmer: 25101498

Ferill máls

01

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 7. fundur

Lagt fram erindi frá Aðalstjórn HK, dags. 14. október 2025, þar sem óskað er eftir því að félagið fái að setja upp merkingar (félagsmerki) við Salavöll og félagsfána inni í Íþróttahúsi Digranes. Bæði mannvirki eru að mestum hluta eingöngu nýtt af félaginu. Í Digranesi er félagið með starfsemi blak-, bandý- og handknattleiksdeildar og knattspyrnuvellir í Versölum eru hluti af skilgreindu HK-svæði fyrir knattspyrnu.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd vísar málinu til úrvinnslu íþróttadeildar og skipulagsdeildar bæjarins sem vinni málið í samráði við HK.