Til baka í fundargerðir
Íþróttafólk Kópavogs - Framkvæmd kjörsins 2025
Málsnúmer: 25112358
Ferill máls
01
Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 8. fundur
Frá árinu 2016 hefur bæjarbúum gefist tækifæri til að taka beinan þátt í kjöri á íþróttafólki Kópavogs með rafrænni kosningu. Vinnureglur við greiðslu atkvæða í kjöri á íþróttafólki Kópavaogs ásamt Reglugerð lýðheilsu- og íþróttanefndar um kjör á íþróttafólki Kópavogs voru endurskoðaðar og samþykktar á fundi nefndarinnar 16. október 2025. Nú geta bæjarbúar gefið atkvæði fyrir sæti 1-5 í kjöri á íþróttafólki Kópavogs en gátu áður aðeins gefið einum aðila í hverjum flokki atkvæði.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að netkosning meðal íbúa standi yfir frá 19. desember til 4. janúar. Upplýst verður um niðurstöðu kjörsins á Íþróttahátíð Kópavogs 8. janúar 2026.