Smáratorg 3. LED skilti. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.
Málsnúmer: 25112620
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 39. fundur
Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 21. nóvember 2025 vegna byggingarleyfisumsóknar Arkís arkitekta f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 3 við Smáratorg. Sótt er um að koma fyrir 25 m² LED skilti/auglýsingaskjá með birtuskynjara á norðurgafli 2. hæðar. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. desember 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 28. janúar 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. janúar 2026.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 36. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 21. nóvember 2025 um byggingarleyfisumsókn fyrir lóðina nr. 3 við Smáratorg. Sótt er um að koma fyrir 25 m² LED skilti/auglýsingaskjá með birtuskynjara á norðurgafli 2. hæðar.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.