Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Þjónustusamningur um rekstur áfangaheimilis

Málsnúmer: 2511329

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1329. fundur

Kynning á drögum að nýjum þjónustusamningi við Samhjálp um rekstur áfangaheimilis.

Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum drög að nýjum þjónustusamningi við Samhjálp um rekstur áfangaheimilis.

02

Bæjarráð - 3236. fundur

Kynning á drögum að nýjum þjónustusamningi við Samhjálp um rekstur áfangaheimilis.

Gestir véku af fundi kl. 10:10

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að nýjum þjónustusamningi við Samhjálp um rekstur áfangaheimilis og vísar drögum áfram til staðfestingar í bæjarstjórn.


Bókun bæjarráðs:

"Bæjarráð óskar eftir því að velferðarsvið birti reglulega tölulegar upplýsingar á vettvangi velferðarráðs er varða notkun Kópavogsbúa á neyðarskýlum Reykjavíkurborgar, Kaffistofu Samhjálpar, ásamt biðlista og notkun á úrræði Kópavogsbæjar í Dalbrekku.

03

Bæjarráð - 3235. fundur

Drög að nýjum þjónustusamningi við Samhjálp um rekstur áfangaheimilis í Dalbrekku 27 eru lögð fram til afgreiðslu.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að nýjum þjónustusamningi við Samhjálp um rekstur áfangaheimilis og vísar þeim áfram til staðfestingar í bæjarstjórn.

Bæjarráð óskar eftir kynningu frá velferðarsviði á samstarfi Kópavogsbæjar og Samhjálpar um þetta verkefni.

04

Velferðar- og mannréttindaráð - 11. fundur

Drög að nýjum þjónustusamningi við Samhjálp um rekstur áfangaheimilis í Dalbrekku 27 eru lögð fram til afgreiðslu.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að nýjum þjónustusamningi við Samhjálp um rekstur áfangaheimilis og vísar drögum áfram til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar í bæjarstjórn.