Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Örvasalir 26. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 2511496

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 45. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn Kjartans Ólafs Sigurðssonar byggingafræðings dags. 7. nóvember 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 26 við Örvasali um breytingu á deiliskipulagi. Á lóðinni er 221,1 m² einbýlishús. Í breytingunni felst að óútgrafið rými undir húsinu, alls 49,2 m², verður gerður að íbúðarrými. Leyfilegt hámarksflatarmál hússins á lóðinni verður því 270,3 m². Stækkunin er innan byggingarreits. Ekki eru gerðar breytingar á ytra byrði hússins. Tillagan var grenndarkynnt frá 6. mars til 13. apríl 2026, engar athugasemdir bárust.

Samþykkt með vísan 3.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 35. fundur

Lögð fram að nýju umsókn Kjartans Ólafs Sigurðssonar byggingafræðings dags. 7. nóvember 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 26 við Örvasali um breytingu á deiliskipulagi. Á lóðinni er 221,1 m² einbýlishús. Sótt er um að breyta 49,2 m² óuppfylltu rými í kjallara í nýtingarrými. Uppdrættir og skráningartafla dags. 14. júlí 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. nóvember 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 17. nóvember 2025.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum við Örvasali 9, 11, 20, 22, 24 og 28. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 27. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

03

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 34. fundur

Lögð fram umsókn Kjartans Ólafs Sigurðssonar byggingafræðings dags. 7. nóvember 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 26 við Örvasali um breytingu á deiliskipulagi. Á lóðinni er 221,1 m² einbýlishús sótt er um að breyta 49,2 m² óuppfylltu rými í kjallara í nýtingarrými. Uppdrættir og skráningartafla dags. 14. júlí 2025.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.