Norðurnes Álftaness. Breytt aðalskipulag. Kynning tillögu á vinnslustigi. Umsagnarbeiðni.
Málsnúmer: 26011277
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 39. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni Garðabæjar dags. 15. janúar 2026 vegna breytinga á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Helstu breytingar sem tillagan gerir ráð fyrir eru eftirfarandi: Íbúðarbyggð (Íb) stækkar og ný svæði bætast við. Íþróttasvæði (Íþ) fyrir fyrirhugaðan golfvöll stækkar og breytist. Íþróttasvæði 1.02 Íþ (hesthúsabyggð) á Eyri er fellt út. Svæði fyrir verslun og þjónustu bætast við. Svæði undir hverfisvernd breytir um lögun. Svæði fyrir iðnað (1.41 I) bætist við vegna fyrirhugaðrar dælustöðvar fráveitu .Umfjöllun í kafla 3.3.3 í greinargerð aðalskipulagsins um skilgreind byggingarsvæði og íbúðafjölda breytist og gerir ráð fyrir hámarksfjölda íbúða á Álftanesi allt að 1.400 í stað 1.100.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið.