Blikastaðaland. Breyting á rammahluta Aðalskipulags Mosfellsbæjar 2011-2030. Umsagnarbeiðni.
Málsnúmer: 26011328
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 39. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni Mosfellsbæjar dags. 15. janúar 2026 vegna breytinga á rammahluta Aðalskipulags Mosfellsbæjar 2011-2030. Tillagan felur í sér að uppfæra og breyta íbúðarsvæði 124-Íb í gildandi aðalskipulagi með nýjum rammahluta í samræmi við þegar kynntar forsendur heildarendurskoðunar aðalskipulags. Breytingin er framsett í greinargerð og á uppdrætti aðalskipulags Mosfellsbæjar 2011-2030, sem rammahluti Blikastaðalands. Breytingin byggir á fjölgun íbúða innan landnotkunar 124-Íb, en einnig á að stofna nýtt svæði verslunar- og þjónustu 150-VÞ meðfram Vesturlandsvegi og opnu svæði til sérstakra nota íþrótta 151-Oí, við gatnamót Vesturlandsvegar og Baugshlíðar. Innfærð eru áform um Borgarlínu um þróunarás svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins auk stígatenginga.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið.