Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hlíðarvegur 62. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Málsnúmer: 26011607

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 40. fundur

Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 16. janúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar Ríkharðs Oddssonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 62 við Hlíðarveg. Sótt er um 8m² glersvalalokun á suðausturhlið jarðhæðar. Uppdrættir dags. 10. desember 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026.

Samþykkt með vísan 6. tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 39. fundur

Lögð fram umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 16. janúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar Ríkharðs Oddssonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 62 við Hlíðarveg. Sótt er um 8 m² svalalokun á suðausturhlið jarðhæðar. Uppdrættir dags. 10. desember 2025.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.