Langabrekka 35. Byggingarleyfisumsókn.
Málsnúmer: 26011609
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 43. fundur
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Kjartans Rafnssonar byggingartæknifræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 35 við Löngubrekku. Sótt er um 23,6 m² stækkun á bílageymslu á suð-vesturhluta lóðarinnar og stoðvegg á lóðarmörkum nr. 35 og 37 við Álfhólsveg. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 12. mars til 12. apríl 2026, engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 40. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa dags. 16. janúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar Kjartans Rafnssonar byggingartæknifræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 35 við Löngubrekku. Sótt er um 23,6 m² stækkun á bílageymslu á suð-vesturhluta lóðarinnar og stoðvegg á lóðarmörkum nr. 35 og 37 við Álfhólsveg. Á embættisafgreiðslufundi þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Löngubrekku 26, 28, 30, 33 og 37 og Álfhólsveg 35 og 37. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.
03
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 39. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 16. janúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar Kjartans Rafnssonar byggingartæknifræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 35 við Löngubrekku. Sótt er um 23,6 m² stækkun á bílgeymslu til suðurs og vesturs og að gera stoðvegg á lóðarmörkum lóðanna nr. 35 við Löngubrekku, 35 og 37 við Álfhólsveg.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.