Smiðjuvegur 11. Byggingarleyfisumsókn.
Málsnúmer: 26011610
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 42. fundur
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 16. janúar 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn G. Odds Víðissonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Smiðjuveg er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að byggja 27m² anddyri norðan megin við iðnaðar- og atvinnuhúsnæði á lóðinni nr. 11 við Smiðjuveg (mhl. 01) ásamt því að bæta við milligólfi, samtals 400 m² viðbót. Uppdrættir dags. 30. október 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2026, samþykkt.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 39. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 16. janúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar G. Odds Víðissonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Smiðjuveg. Sótt er um að byggja 27 m² útbyggingu á norðurhlið, innra skipulagi og gluggasetningum í útveggjum. Uppdrættir dags. 30. október 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.