Kópavogsbraut 105. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.
Málsnúmer: 2601187
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 43. fundur
Lögð fram að nýju að lokinn grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Jóns M. Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 105 við Kópavogsbraut. Sótt er um 55 m² bílageymslu og 31 m² svalir norðvestanmegin við núverandi hús, sjá uppdrætti dags. 3. desember 2025, uppfært 11. febrúar 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 23. febrúar til 26. mars 2026, engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 39. fundur
Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 19. desember 2025 vegna byggingarleyfisumsóknar Jóns M. Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 105 við Kópavogsbraut. Sótt er um 55 m² bílgeymslu og 31 m² svalir norðvestanmegin við núverandi hús. Uppdrættir dags. 3. desember 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 12. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 28. janúar 2026.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að hagsmunaaðilum að Kópavogsbraut 98, 100, 103, 103A og 107 og Þinghólsbraut 72 og 74. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.
03
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 38. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 19. desember 2025 vegna byggingarleyfisumsóknar Jóns M. Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 105 við Kópavogsbraut. Sótt er um 55 m² bílgeymslu og 31 m² svalir norðvestanmegin við núverandi hús. Uppdrættir dags. 3. desember 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.