Holtagerði 49. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.
Málsnúmer: 2601199
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 43. fundur
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Bjarna Snæbjörnssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 49 við Holtagerði. Sótt er um leyfi til að byggja 48 m² viðbyggingu sunnan megin við núverandi hús. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 26. febrúar til 30. mars 2026, engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 39. fundur
Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 19. desember 2025 vegna byggingarleyfisumsóknar Bjarna Snæbjörnssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 49 við Holtagerði. Sótt er um leyfi til að byggja 48 m² viðbyggingu sunnanmegin við núverandi hús. Uppdrættir dags. 24. nóvember 2025.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Holtagerði 43, 45, 47, 51, 53, 55 og Skólagerði 32, 34, 36 og 38. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.
03
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 38. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 19. desember 2025 vegna byggingarleyfisumsóknar Bjarna Snæbjörnssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 49 við Holtagerði. Sótt er um leyfi til að byggja 48 m² viðbyggingu sunnanmegin við núverandi hús. Uppdrættir dags. 24. nóvember 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.