Búðakór 1. Byggingarleyfisumsókn.
Málsnúmer: 26021370
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 42. fundur
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 30. janúar 2026 þar sem byggingarleyfisumsóknar Sigríðar Magnúsdóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Búðakór er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að breyta skilti í LED skilti og stækka niður á við. Ljósflötur austurhliðar stækkaður um 8m² og verður allt að 12 m² og vesturhliðar um 4m² og verður allt að 7m². Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2026.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 40. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa dags. 30. janúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar Sigríðar Magnúsdóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Búðakór. Sótt er um að breyta skilti í LED skilti og stækka niður á við. Ljósflötur austurhliðar stækkaður um 8m² og verður allt að 12 m² og vesturhliðar um 4m² og verður allt að 7m².
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.