Göngustígar við Naustavör. Framkvæmdaleyfisumsókn.
Málsnúmer: 26022752
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 42. fundur
Lögð fram að nýju framkvæmdaleyfisumsókn umhverfissviðs dags. 18. febrúar 2026 um gerð nýrrar göngutengingar, endurgerð eldri göngu- og hjólastíga, yfirborðsfrágangi og tilfærslu fráveitulagnar auk nýrra lagnaframkvæmda á svæði við Naustavör og Vesturvör ásamt hluta opins svæðis í Bryggjuhverfi við Kársnes. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 23. mars 2026.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 23. mars 2026. Vísað til lögfræðideildar til útgáfu framkvæmdaleyfis f.h. skipulagsfulltrúa.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 40. fundur
Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn umhverfissviðs dags. 18. febrúar 2026 um tilfærslu á göngustíg, frárennslilögn og aðlaga stígakerfi í samræmi við meðfylgjandi gögn.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.