Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Miðbær Kópavogs - Rammahluti aðalskipulags

Málsnúmer: 2602471

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 25. fundur

Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 26. febrúar 2026 þar sem óskað er eftir heimild skipulags- og umhverfisráðs til að hefja vinnu við gerð rammahluta Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040 fyrir miðbæ Kópavogs, til að fylgja eftir markmiðum aðalskipulags Kópavogs. Markmið skipulagsvinnunnar er að móta heildstæða áætlun um þróun svæðisins og stuðla þannig að bættum gæðum í hinu byggða umhverfi og samkeppnishæfni þess. Lagt er til að skipulagssvæði rammahlutans nái til þróunarsvæðis 2 og 3 ásamt (ÞR-2 og ÞR-3) miðsvæði (M1).

Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.

Bókun:

„Það kemur spánskt fyrir sjónir að skipulagsdeild óski heimildar til að hefja vinnu við miðbæjarskipulag og geri tillögu um að unnið skuli að rammahluta aðalskipulags fyrir miðbæjarsvæðið á tilteknum forsendum. Bæjarstjórn samþykkti nefnilega samhljóða á fundi 9. apríl 2024 að vísa því til skipulagsráðs að hefja undirbúning að gerð áætlunar og heildstæðrar stefnu um þróun miðbæjar Kópavogs. Kosti og galla ólíkra leiða átti að skoða. Markmiðið - að festa heildarsýn og tengingar fyrir miðbæjarsvæði Kópavogs í sessi í samráði við íbúa og aðra hagaðila. Samþykktin var eftir umræðu um tillögu sem minnihlutinn gerði sameiginlega. Byggja skyldi vinnuna á forsendugreiningu Alta frá 2021 og leiðbeiningum Skipulagsstofnunar og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um sjálfbært skipulag: Mannlíf byggð og bæjarrými. Skipulagsdeild er bent á að kynna sér dagskrármálið á bæjarstjórnarfundi 9. apríl 2024 og vera minnug þess að bæði nefndir bæjarins og starfsmenn þiggja umboð sitt frá bæjarstjórn. Það vekur athygli að meðan ekki vinnst tími til að sinna samþykktum bæjarstjórnar er hægt að bregðast við óskum fjárfesta um vinnuframlag t.d. varðandi Nýbýlaveg 1 og Gunnarshólma.“

Helga Jónsdóttir, Hákon Gunnarsson, Indriði Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

Bókun:

„Bókun minnihlutans er óviðurkvæmileg og ýjað er að óeðlilegum vinnubrögðum starfsfólks bæjarins.

Að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags er ekki frávik frá samþykkt bæjarstjórnar um þróun miðbæjarins heldur eðlilegt framhald hennar. Rammahluti er það skipulagsverkfæri sem tryggir heildarsýn þar sem forsendugreining og samráð er unnið á formlegan og lögbundinn hátt.

Meirihlutinn hafnar þeirri aðdróttun sem felst í bókun minnihlutans og styður eindregið að heimild verði veitt til að hefja þessa mikilvægu vinnu fyrir miðbæ Kópavogs. Einstök deiliskipulagsmál eru unnin innan gildandi ramma og samkvæmt lögbundnu ferli. Með því að hefja vinnu við rammahluta miðbæjarsvæðisins er einmitt verið að styrkja heildarrammann á því svæði svo framtíðaruppbygging verði metin á skýrari og gagnsærri forsendum.“

Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bókun:

„Undirrituð beina engum spjótum að starfsmönnum bæjarins öðrum en framkvæmdastjóranum, sem er yfirmaður annarra starfsmanna og ber ábyrgð á að samþykktum bæjarstjórnar sé hrundið í framkvæmd. Við fögnum því að verkefni sem við settum á dagskrá bæjarstjórnar í apríl 2024 og var samþykkt samhljóða sé loksins að koma til framkvæmdar. Vel unnið rammaskipulag getur vonandi skilað miðbæ sem við verðum öll stolt af. Við vildum að sú vinna hefði verið fremst á forgangslistanum eftir samþykkt bæjarstjórnar.“

Helga Jónsdóttir, Hákon Gunnarsson, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

Fundarhlé hófst kl. 16:27, fundi framhaldið kl. 17:01.

Samþykkt að hafin verði vinna við gerð rammahluta aðalskipulags fyrir miðbæjarsvæði Kópavogs (ÞR-2, ÞR-3 og M1).