Arnarland í Garðabæ. Gatnamót Arnarsmára og Fífuhvammsvegar.
Málsnúmer: 26031783
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 26. fundur
Lögð fram tillaga VSB verkfræðistofu f.h. Garðabæjar um breytt fyrirkomulag gatnamóta í Kópavogi við Arnarlandið í Garðabæ við núverandi samgöngukerfi á gatnamótum Fífuhvammsvegar og Arnarsmára. Tillagan gerir ráð fyrir að í megindráttum verði gatnamótin áþekk því sem nú er þar sem áfram verður ein akrein beint yfir gatnamótin og ljósastýrð beygjuakrein af Fífuhvammsvegi til vinstri inn á Arnarsmára. Ný gatnamót verða krossgatnamót í stað T-gatnamóta. Sér akrein verður fyrir vinstribeygjur af Fífuhvammsvegi inn í Arnarland. Til að afmarka aksturslínur og stytta rýmingartíma gatnamóta er gatnamót Arnarsmára við Fífuhvammsveg endurmótuð og stöðvunarlínur færðar nær gatnamótunum. Þjónustustig gatnamóta mun breytast úr þjónustustigi A - Nær engar tafir, yfir í þjónustustig C - Litlar tafir með nýju tengingunni og ljósastýringu á gatnamótunum.
Egill Daði Gíslason deildarstjóri umhverfis og framkvæmda hjá Garðabæ og Thijs Kreukels samgöngusérfræðingur frá VSB verkfræðistofu gerðu grein fyrir erindinu.
Gestir véku af fundi kl. 15:42.
Lagt fram og kynnt.