HK - Umsókn um æfingatíma 2026-2027
Málsnúmer: 26041994
Ferill máls
01
Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 12. fundur
Lögð fram umsókn aðalstjórnar HK dags. 13. apríl, þar sem félagið sækir um æfingatíma fyrir fimm deildir, en það eru knattspyrnu-, bandý-, blak-, borðtennis- og handknattleiksdeild.
Ekki er hægt að verða við öllum óskum félagsins en lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir eftirfarandi tíma:
Alls 41 tíma í Fagralundi samkvæmt töflu sem fyrst og fremst eru til blakdeildar.
Alls 54 tíma í Digranesi fyrir handknattleiks-, blak,- og bandýdeild.
Alls 4 tíma í Íþróttahúsi Kársnesskóla samkvæmt töflu fyrir handknattleik.
Alls 2 tíma í Íþróttahúsi Lindaskóla samkvæmt töflu fyrir bandý.
Alls 3,5 tíma í Íþróttahúsi Kópavogsskóla samkvæmt töflu fyrir bandý.
Alls 17,5 tíma í Íþróttahúsi Snælandsskóla samkvæmt töflu fyrir borðtennis,- og bandýdeild.
Ekki er hægt að verða við óskum knattspyrnudeildar um tíma frá 20:00-21:00 á mánu- og miðvikudögum í Kórnum. Hægt er að verða við óskum deildarinnar um tíma frá 18:00 - 20:00 á laugardögum. Að auki fær deildin úthlutað tímum á gervigrasinu úti við Kórinn frá kl. 21:00 - 22:00 alla virka daga og eftir kl. 17:00 um helgar. Þessi úthlutun er tímabundin og verður endurskoðuð þegar nýr keppnisvöllur verður tekin í notkun í tengslum við stúkubyggingu.