Breiðablik - Umsókn um æfingatíma 2026-2027
Málsnúmer: 26041998
Ferill máls
01
Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 12. fundur
Lagðar fram umsóknir aðalstjórnar Breiðabliks dags. 13. apríl, þar sem félagið sækir um æfingatíma fyrir fjórar deildir, en það eru körfuknattleiks-, skíða-, sund-, og taekwondodeild.
Ekki er hægt að verða við öllum óskum félagsins en lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir eftirfarandi tíma:
Alls 9 tíma í Fagralundi samkvæmt töflu sem fyrst og fremst eru til körfuknattleiksdeildar.
Alls 21 tíma í íþróttahúsi Kársnesskóla samkvæmt töflu fyrir körfuknattleik.
Alls 12 tíma í Íþróttahúsi Lindaskólaskóla samkvæmt töflu fyrir TKD-, körfu og skíðadeild.
Knattspyrnudeild fær úthlutað samkvæmt ramma til úthlutunar.
Hægt er að verða við óskum sunddeildar um tíma í Salalaug.
Hægt er að verða að mestu við óskum sunddeildar í Kópavogslaug en með fyrirvörum þar sem tímatöflur vegna skólasunds liggja ekki fyrir:
Ekki er hægt að lofa fimm brautum frá klukkan 15:00 (tímar 15:00 - 21:30 (19:30)) í stóru innilauginni á virkum dögum ef skólasundið þarf það pláss. Ekki er hægt að lofa aðgangi að kennslulauginni frá klukkan 14:00 eða 15:00 á mánu-, þriðju-, miðviku- og fimmtudögum (tímar 14:30 - 18:30 og 15:30 - 18:00). Skólasundi er mögulega ekki lokið svo snemma á þessum dögum.
Varðandi útilaugina þá eiga æfingatímar að ganga upp, en þó með þeim fyrirvara að Garpar og þríþrautadeild haldi sig við núverandi æfingatíma á mánu- og miðvikudögum klukkan 19:30 til 20:30. Sunddeildin þarf að hafa samráð við Garpa og Þríþrautadeild varðandi tíma í 50 m laug. Óskað er eftir að sunddeildin hafi samráð við forstöðumenn sundlauganna áður en gengið er frá æfingatöflunum.