Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stál-úlfur - Umsókn um æfingatíma 2026-2027

Málsnúmer: 26042002

Ferill máls

01

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 12. fundur

Lögð er fram umsókn frá Stál-Úlfi, dags. 12. apríl, þar sem óskað er eftir tímum fyrir körfu- og knattspyrnudeild félagsin á komandi vetri.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir eftirfarandi:

Félagið fær úthlutað 2 tímum á viku frá kl. 19:00 - 20:00 á þriðjudögum og fimmtudögum í Lindaskóla. Mögulegt er að auka við tímann eftir áramót þegar skíðadeild sleppir sínum tímum. Deildin fær einnig úthlutað í Kársnesskóla á föstudögum 20:00 -21:30 og á sunnudögum 17:00 - 19:00. Félagið fær áfram úthlutað keppnistíma frá kl 15:00 - 19:00 á sunnudögum í Fagralundi.

Hægt er að verða við ósk félagsins um tíma á sunnudögum eftir kl. 17:00 á gervigrasinu á Fífuvöllum eða Fagralundi