Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Melgerði 14. Byggingarleyfisumsókn.

Málsnúmer: 26043324

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 51. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 14 við Melgerði. Sótt er um að byggja viðbyggingu yfir verönd framan við forstofu og taka niður burðarvegg í eldhúsi og stofu, alls stækkun upp á 14,4 m². Uppdrættir dags. 15. desember 2025. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 16. júní til 17. júlí 2026, engar athugasemdir bárust.

Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 46. fundur

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 24. apríl 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 14 við Melgerði er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að byggja viðbyggingu yfir verönd framan við forstofu og taka niður burðarvegg í eldhúsi og stofu, alls stækkun upp á 14,4 m². Uppdrættir dags. 15. desember 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 11. maí 2026 var erindinu vísað til umsagnar. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. maí 2026.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Melgerði nr. 10, 11, 12, 13, 15, 16, 18 og Borgarholtsbraut nr. 29, 31 og 33. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

03

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 45. fundur

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 24. apríl 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 14 við Melgerði er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um byggja yfir verönd framan við forstofu og taka niður burðarvegg í eldhúsi og stofu. Uppdrættir dags. 15. desember 2025.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.