Til baka í fundargerðir
Dalvegur 30 og 30A. Skilti. Fyrirspurn.
Málsnúmer: 26051936
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 46. fundur
Lögð fram fyrirspurn Andra Klausen arkitekts dags. 11. maí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 30 við Dalveg. Óskað er eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til þess að koma fyrir þjónustuskiltum, í formi upplýsingaskjáa, við innkeyrslu á norðurhlið og við suðurhlið lóðarinnar. Um er að ræða upplýsingaskjái þar sem fyrirtæki í húsunum geta komið upplýsingum á framfæri við vegfarendur, s.s. um starfsemi, þjónustu og aðgengi. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. maí 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. maí 2026, samþykkt.