Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Smiðjuvegur 11. Byggingarleyfisumsókn.

Málsnúmer: 26051988

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 50. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn G. Odds Víðissonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Smiðjuveg. Sótt er um að byggja 27m² anddyri norðan megin við iðnaðar- og atvinnuhúsnæði á lóð nr. 11 við Smiðjuveg (mhl. 01). Fyrirhuguð viðbygging verður nýr inngangur inn í verslunarrýmið, um leið verður fimm stórum gluggum lokað. Jafnframt verður bætt við milligólfi, samtals 400 m² viðbót. Uppdrættir dags. 30. október 2025. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 8. júní til 8. júlí 2026, engar athugasemdir bárust.

Samþykkt með vísan til 4. tl. 3. gr. viðauka IV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 46. fundur

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 8. maí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn G. Odds Víðissonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Smiðjuveg er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að byggja 27m² anddyri norðan megin við iðnaðar- og atvinnuhúsnæði á lóðinni nr. 11 við Smiðjuveg (mhl. 01) ásamt því að bæta við milligólfi, samtals 400 m² viðbót. Uppdrættir dags. 30. október 2025.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Smiðjuvegi 11, 11A, og Fossvogsbrún 8 og 10. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.