Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kastalagerði 4. Byggingarleyfisumsókn.

Málsnúmer: 26051993

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 51. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Kastalagerði. Sótt er um að framlengja valmaþak yfir bílskúr og að hækka bílskúrsveggi upp í nýtt þak. Uppdrættir dags. 25. desember 2008, uppfærðir 4. febrúar 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 16. júní til 17. júlí 2026, engar athugasemdir bárust.

Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 48. fundur

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 8. maí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Kastalagerði er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að framlengja valmaþak yfir bílskúrs og að hækka bílskúrsveggi upp í nýtt þak. Uppdrættir dags. 23. desember 2025, uppfærðir 4. febrúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 26. maí 2026 var erindinu vísað til umsagnar. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026 að framlögð byggingarleyfisumsókn verði grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. 1, 2, 3, 5 og 6 við Kastalagerði, nr. 18 við Borgarholtsbraut og nr. 7 og 7A við Urðarbraut.

03

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 46. fundur

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 8. maí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Kastalagerði er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að framlengja valmaþak yfir bílskúrs og að hækka bílskúrsveggi upp í nýtt þak. Uppdrættir dags. 23. desember 2025.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.