Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga bæjarfulltrúa Pírata, Viðreisnar, Vina Kópavogs og Samfylkingar um að fela forsætisnefnd að vinna tillögu að verklagsreglum um upplýsingamiðlun, auglýsingar og samfélagsmiðlanotkun

Málsnúmer: 26053218

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3256. fundur

Frá bæjarfulltrúum Pírata, Viðreisnar, Vina Kópavogs og

Samfylkingu, lögð fram svohljóðandi tillaga:

Bæjarráð samþykkir að fela forsætisnefnd að vinna tillögu að verklagsreglum um

upplýsingamiðlun, auglýsingar og samfélagsmiðlanotkun Kópavogsbæjar. Markmið

reglnanna verði að tryggja hlutleysi, jafnræði og fagleg vinnubrögð í allri miðlun

sveitarfélagsins og koma í veg fyrir að opinberir miðlar, auglýsingafé eða framleiðsla efnis á vegum bæjarins nýtist með beinum eða óbeinum hætti til kynningar á einstökum frambjóðendum, listum eða stjórnmálaflokkum í aðdraganda kosninga.

Lagt fram.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til forsætisnefndar.