Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn varabæjarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar um stoppistöðvar strætó í Hamraborg og kynningarfund fyrir íbúa.

Málsnúmer: 26054249

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 31. fundur

Lögð fram fyrirspurn varabæjarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar dags. 26. maí 2026 um fyrirkomulag stöppustöðva í Hamraborg og kynningarfund fyrir íbúa.

Bókun:

„Fulltrúar Samfylkingar þakka fráfarandi fulltrúa Pírata fyrir að benda á að vöntun sé á umferðaröryggi við stoppistöðvar strætó á Kópavogshálsi, en í núverandi fyrirkomulagi stoppa leiðirnar alveg við gangbrautina yfir Kópavogsháls þar sem gengið er að Bókasafni Kópavogs og Tónlistarskóla Kópavogs. Við viljum jafnframt benda á að í ljósi þess að miklar framkvæmdir eru væntanlegar á svæðinu og þungaflutningar í kjölfarið þarf að skoða vel ökuleiðir stórra vinnuvéla og vörubíla og reyna að sporna við að þessi þunga umferð beinist í átt að fjölförnum gönguleiðum og sömuleiðis ekki fram hjá Kópavogsskóla og MK.“

Eydís Inga Valsdóttir og Sólveig Skaftadóttir.

Vísað til umsagnar umhverfissviðs.