Dalsmári 1. Smáraskóli. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 26054610
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 50. fundur
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn umhvefissviðs dags. 28. maí 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 1 við Dalsmára. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir núverandi færanlegar skólastofur stækkar til norðausturs um 19,7m x 22m svo hægt sé að koma fyrir nýrri 135,1 m² færanlegri skólastofu. Fyrirhuguð skólastofa er á einni hæð með flötu þaki. Hámarks þak- og vegghæð frá gólfi mun vera um 3,06 m. Uppdráttur dags. 4. júní 2026. Umsóknin var grenndarkynnt frá 11. júní til 12. júlí 2026, engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til 3. tl. 3. gr. viðauka IV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 48. fundur
Lögð fram umsókn umhvefissviðs dags. 28. maí 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 1 við Dalsmára. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir núverandi skólastofur stækkar til norðausturs um 19,7m x 22m svo hægt sé að koma fyrir færanlegri 135,1 m² skólastofu. Fyirirhuguð skólastofa er á einni hæð með flötu þaki. Hámarks þak- og vegghæð frá gólfi mun vera um 3.06 m. Uppdráttur dags. 4. júní 2026.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Dalsmára 1-7.