Til baka í fundargerðir
Tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði um umferðaröryggi við skóla í Kópavogi.
Málsnúmer: 26061982
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 31. fundur
Lögð fram til umræðu tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa dags. 29. júní 2026 um umferðaröryggi við skóla og götur í Kópavogi.
Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingar fagna því að verið sé að ræða umferðaröryggi barna við skóla bæjarins. Þrátt fyrir að fyrirspurnin sé mjög opin styðjum við að ráðist verði í úttekt á umferðaröryggi við grunn- og leikskóla bæjarins með sérstaka áherslu á göngu- og hjólaleiðir barna til og frá skóla. Auk þess má endurskoða aðgerðir og áætlanir við að draga úr umferðarhraða.“
Eydís Inga Valsdóttir og Sólveig Skaftadóttir.
Lagt fram. Umræður.