Heiðarhvarf 1-3 og 9-11. Formleg kvörtun vegna afhendingu lóða
Málsnúmer: 26062082
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3259. fundur
Lagt fram svar við erindi dags. 11.05.2026 er varðar kvörtun vegna afhendingar lóða í Vatnsendahvarfi.
Lagt fram.
Gestur vék af fundi kl. 9:00.
Bókun:
"Undirritaður telur svar umhverfissviðs við erindi frá Fagmót ehf. undirstrika mikilvægi þess að fram fari óháð stjórnsýsluúttekt á umhverfissviði Kópavogsbæjar.
Í svarinu kemur fram að á fyrirspurnartíma hafi verið litið svo á að bygging húss á einni hæð gæti verið möguleiki þar sem „ekki var að finna afdráttarlaust bann“ né kvöð í skilmálum. Síðar í sama svari kemur hins vegar fram að niðurstaða skipulagsdeildar hafi verið að ekki væri heimilt að byggja hús á einni hæð og er þá vísað til sömu skilmála og deiliskipulags til stuðnings þeirri niðurstöðu.
Þetta misræmi sýnir að þörf er á skýrara verklagi og samræmdari svörum í samskiptum við lóðarhafa og byggingaraðila.
Byggingaraðilar leggja fram tilboð á grundvelli þeirra upplýsinga sem liggja fyrir í ferlinu. Að bjóða aðilum að skila lóðum bætir ekki sjálfkrafa úr röngum eða misvísandi svörum, enda kunna aðilar að hafa valið tilteknar lóðir fremur en aðrar á grundvelli slíkra svara.
Þetta er einmitt meðal þess sem tillaga Miðflokksins um óháða stjórnsýsluúttekt á umhverfissviði miðar að því að skoða. Draga þarf lærdóm af málum sem þessum, bæta verklag og styrkja traust á stjórnsýslu bæjarins."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Skilvirkni í skipulags- og byggingarmálum er sameiginlegt hagsmunamál Kópavogsbæjar, íbúa og uppbyggingaraðila. Á fundi bæjarráðs fór skrifstofustjóri umhverfissviðs yfir minnisblað og þær úrbætur sem þegar hafa verið ráðist í til að bæta verklag og upplýsingagjöf vegna lóðaúthlutana í Vatnsendahvarfi. Meðal annars hafa úthlutunargögn verið skýrð betur og unnið er að einfaldari framsetningu á ferli byggingarleyfisumsókna og afgreiðslutíma.
Meirihlutinn telur að umhverfissvið hafi brugðist við þeim atriðum sem upp hafa komið og mun fylgja þeim úrbótum eftir. Mistök við svörun fyrirspurnar um hæð húsa voru leiðrétt þegar þau komu í ljós og viðkomandi aðilum boðið að skila lóðum."
Ásdís Kristjánsdóttir
Andri Steinn Hilmarsson
Hjördís Ýr Johnson
Orri V. Hinriksson
Bókun:
"Undirrituð taka undir fram komnar áherslur á bætt verklag. Ljóst er af samtölum við verktaka og þróunaraðila að úthlutanir á lóðum hafa oft og tíðum gengið umtalsvert betur en nú. Greina þarf hvað hafi breyst með opinn hug og þjónustulund að leiðarljósi."
Jónas Már Torfason
María Ellen Steingrímsdóttir
02
Bæjarráð - 3258. fundur
Frá lóðarhöfum Heiðarhvarfs 1-3 og 9-11, lagt fram erindi varðandi afhendingu lóða.
Umræður.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.