Kópavogsbraut 1b. Beiðni um flýtingu á afhendingu íbúða
Málsnúmer: 26062360
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3259. fundur
Lagt fram erindi f.h. Sunnuhlíðarsamtakanna, dags. 16. júní 2026, þar sem samtökin óska eftir því að íbúðir að Kópavogsbraut 1b verði afhentar þeim fyrr en samkomulag við Kópavogsbæ gerir ráð fyrir.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindi Sunnuhlíðarsamtakanna og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Bókun:
"Undirrituð ítreka mikilvægi þess að gætt sé að fullnægjandi framboði á félagslegu húsnæði og að aðstæður skjólstæðinga félagslega húsnæðiskerfisins séu tryggðar. Þó er ljóst að viðbragða sé þörf vegna framkvæmda í Fannborg og undirstrikar þörf á viðeigandi undirbúningi og kynningu verkefna, en ljóst er að töluvert hefur vantað upp á í þeim efnum bæði gagnvart Sunnuhlíðasamtökunum sem og íbúum í Gjábakka, Fannborg og Hamraborg."
Jónas Már Torfason
María Ellen Steingrímsdóttir