Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingar um lengingu opnunartíma sundlauga Kópavogs

Málsnúmer: 26062520

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3259. fundur

Bæjarráð hafnar tillögunni með þremur atkvæðum gegn atkvæði Jónasar Más Torfasonar og hjásetu Einar Jóhannesar Guðnasonar.

Bókun:

"Meirihlutinn telur eðlilegt að breytt fyrirkomulag við opnunartíma sundlauga verði tekið upp. Ljóst er að slíkar breytingar fela í sér umfangsmiklar ráðningar, breytingar á vaktakerfum og þjálfun nýs starfsfólks m.t.t. öryggiskrafna. Með hliðsjón af þeim upplýsingum sem liggja fyrir telur meirihlutinn ótækt að samþykkja tillögu Samfylkingarinnar. Á þessum fundi er tekin fyrir tillaga meirihlutans um lengdan sumaropnunartíma í annarri lauginni sem rúmast innan núverandi vaktakerfis og með núverandi starfsfólki en um leið jafnframt boðað að hafin verði vinna við lengdan opnunartíma að vetrarlagi. Við leggjum áherslu á að breytingar á opnunartíma verði unnar með það fyrir augum að tryggja öryggi gesta og góða þjónustu."

Ásdís Kristjánsdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

Hjördís Ýr Johnson

Orri Vignir Hlöðversson


Bókun:

"Bæjarfulltrúar Samfylkingar hafa oft og ítrekað tjáð það, m.a. í pontu bæjarstjórnar, að þeir séu tilbúnir til að gera breytingar á tillögu sinni, svo sem með breytingu á gildistíma nýrra opnunartíma, svo raunhæft sé að hún komi til framkvæmdar. Meirihlutinn þarf að gera upp við sig hvort hann telji það eftirsóknarvert að lengja opnunartíma með þeim hætti sem tillaga Samfylkingar kveður á um, þ.e. að opið sé til kl. 22 allt árið um kring og til kl. 23 á föstu- og laugardögum um sumar, en getur ekki skýlt sér á bak við áskoranir í tæknilegri útfærslu."

Jónas Már Torfason