Erindi til nýkjörinna sveitarstjórna landsins vegna öldungaráða
Málsnúmer: 26062820
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3259. fundur
Lagt fram til kynningar erindi Landsambands eldri borgara, dags. í júní 2026. Aukinheldur lagðar fram áherslur Landsambandsins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026.
Lagt fram til upplýsinga.
Bókun:
"Eldri borgarar eru stór og mikilvægur hluti af samfélaginu í Kópavogi og telur undirrituð mikilvægt að Kópavogsbær styðji við virka þátttöku þeirra í samfélaginu. Viðreisn myndi gjarnan vilja sjá frístundastyrk fyrir tekjulága eldri borgara verða að veruleika í Kópavogi á kjörtímabilinu. Flokkurinn hafði slíkt á stefnuskrá sinni í nýliðnum kosningum og er málefni sem við munum halda á lofti.
Viðreisn telur mikilvægt að fjárhagsstaða eldri fólks ráði ekki úrslitum um hvort þau geti stundað hreyfingu við sitt hæfi eða tekið þátt í skipulögðu félags- og frístundastarfi á efri árum og vill því sjá tekjutengdan frístundastyrk til eldri borgara verða að veruleika, t.d. að fyrirmynd Hafnarfjarðarbæjar. Regluleg hreyfing og virk þátttaka í samfélaginu stuðlar að betri líkamlegri og andlegri heilsu, dregur úr félagslegri einangrun og eykur lífsgæði.
Viðreisn telur áhersluatriði Landssambands eldri borgara um frístundastyrk, sér í lagi fyrir tekjulægsta hópinn, gott og mikilvægt og vonast til að meirihlutinn sé tilbúinn að skoða málið þrátt fyrir að það sé ekki hluti af gildandi málefnasamningi. Frístundastyrkur fyrir tekjulága eldri borgara styður við reglulega hreyfingu og væri markviss fjárfesting í lýðheilsu, jöfnum tækifærum og bættum lífsgæðum eldri íbúa Kópavogs."
María Ellen Steingrímsdóttir