Tillaga um lengri opnunartíma sundlauga Kópavogs
Málsnúmer: 26063107
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3259. fundur
Lögð fram tillaga meirihluta um lengdan opnunartíma sundlauga í Kópavogi, ásamt minnisblaði menntasviðs.
Gestir viku af fundi kl. 9:58
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu að lengingu opnunartíma Salalaugar. Bæjarráð felur jafnframt menntasviði að undirbúa tillögu að lengdum opnunartíma sundlauganna að vetrarlagi sem tæki gildi frá 1. janúar 2027.
Bókun:
"Fulltrúi Samfylkingar greiðir atkvæði með tillögu um lengri opnunartíma sundlauga en vísar til tillögu sinnar sem afgreidd var undir 23. fundarlið og var hafnað af meirihluta bæjarráðs. Tillaga meirihlutans gengur stutt og ljóst er að undirbúningur ákvörðunarinnar hefði þurft að hefjast fyrr miðað við skýringar menntasviðs Kópavogsbæjar. Fulltrúi Samfylkingar leggur eftir sem áður áherslu á að opnunartími beggja sundlauga verði lengdur til kl. 22 allt árið um kring og að þær breytingar taki gildi sem allra fyrst og mun fylgja því eftir í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027. Eins telur fulltrúi Samfylkingar fullt tilefni til þess að lengja opnunartíma sundlauga sérstaklega á föstu- og laugardögum að sumri til, þar sem ungmennum bæjarins er sérstaklega boðið að eiga saman kvöldstund í sundi fremur en að verja tíma sínum við aðrar og óæskilegri aðstæður. "
Jónas Már Torfason