Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fundargerð 629. fundar stjórnar SSH frá 22.06.2026

Málsnúmer: 26063303

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3259. fundur

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.

Bókun vegna dagskrárliðar nr. 4 í fundargerðinni:

"Við viljum draga sérstaklega fram eftirfarandi úr bókun SSH varðandi þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir:

Þá tekur stjórn SSH undir ályktun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem stjórnin ítrekar fyrri athugasemdir sínar við fyrirhugaða reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins og þá kröfu stjórnarinnar að fallið verði frá fyrirhugaðri birtingu reglugerðarinnar og að reglugerðin verði endurskoðuð með það fyrir augum að hún uppfylli ákvæði samkomulags ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025."

Ásdís Kristjánsdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

Hjördís Ýr Johnson

Orri Vignir Hlöðversson

Einar Jóhannes Guðnason

María Ellen Steingrímsdóttir


Bókun:

"Annan bæjarráðsfund í röð teflir meirihluti bæjarráðs fram bókun um sama efni án kynningar á hinu undirliggjandi umfjöllunarefni, en á síðasta fundi bæjarráðs var bókað að málið yrði kynnt sérstaklega á þessum fundi bæjarráðs. Málið hefur eingöngu hlotið umfjöllun í formi bókana pólitískt skipaðra stjórna Sambands íslenskra sveitarfélaga og stjórnar Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Með tímamótasamkomulagi ríkisstjórnar og sveitarfélaga tók ríkið yfir þjónustu við stóran hóp barna með fjölþætta stuðningsþörf annars vegar og uppbyggingu hjúkrunarheimila hins vegar. Er það stærra skref en fyrri ríkisstjórnir hafa treyst sér til að stíga. Í samkomulaginu er skýrt kveðið á um að lagt sé upp með að útgjöld sveitarfélaga vegna þjónustu við umrædd börn lækki um 3 milljarða króna, en fyrir liggur að ríkið muni stíga inn með rúmlega það framlag. Samkomulagið nær til barna með fjölþætta stuðningsþörf og því ljóst frá upphafi að það næði ekki til fullorðinna einstaklinga.

Áframhaldandi samtal ríkis og sveitarfélaga á sér stað og er hluti af stærri heildarendurskoðun málaflokksins. Það er ótímabært að bæjarráð taki afstöðu í þessu máli án kynningar enda ljóst að enginn skjólstæðingur Kópavogs hefur fengið höfnun um vistun í úrræðum vegna þeirrar reglugerðar sem vísað er til í bókun meirihlutans."

Jónas Már Torfason


Bókun:

"Það sætir furðu að bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar geti ekki tekið undir álit stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og stjórnar SSH um áhyggjur þeirra af vanefndum ríkisins sem snúa að þessu samkomulagi. Það er ótækt að ræða um það sem tímamótasamkomulag þegar efndirnar fylgja ekki á eftir."

Ásdís Kristjánsdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

Hjördís Ýr Johnson

Orri Vignir Hlöðversson


Bókun:

"Með gagnbókun sinni fellir meirihlutinn grímuna af augljóslega flokkspólitískri vegferð sinni í þessu máli, þar sem bókað er í bæjarráði án þess að málið hafi hlotið viðeigandi kynningu á þeim vettvangi og skýlir sér á bak við ályktun stjórnar SSH, sem er alfarið skipuð fulltrúum Sjálfstæðisflokks.

Með bókun undirritaðs er á það bent að málið sé flókið og þarfnast lausnamiðaðs samtals, með allar staðreyndir á borðinu. Ljóst er að aðilum greinir á um hvort samkomulagið hafi verið virt. Á það var bent í fyrri bókun undirritaðs að samkomulagið væri skýrt um það fjárframlag sem ríkið myndi koma með að borðinu og um gildissvið þess gagnvart börnum, ekki fullorðnum, með fjölþætta stuðningsþörf. Hvort tveggja hefur verið efnt, og gildissvið samningsins kallar eðli máls samkvæmt á að línan milli ábyrgðar á börnum og fullorðnum með stuðningsþörf sé einhvers staðar dregin. Endurskoðun kerfisins er í vinnslu með virku samtali ríkis og sveitarfélaga um hvernig þjónusta við umræddan hóp verði best borgið og framkvæmd nýrrar reglugerðar á grundvelli samkomulagsins er í sífelldri vöktun. Flokkspólitísk upphlaup eru ekki gagnleg innlegg í þá vinnu."

Jónas Már Torfason


Bókun:

"Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga var einróma í afstöðu sinni til málsins þvert á flokka og sú bókun sem meirihlutinn ásamt fulltrúum Viðreisnar og Miðflokksins í bæjarráði kusu að draga sérstaklega fram úr fundargerð SSH vísar til þeirrar bókunar svo tal um flokkapólitík er marklaust. Með reglugerðinni er skilgreining hópsins sem um ræðir einhliða þrengd af ráðuneytinu. Fjöldi barna sem áður voru metin af sérfræðingum með fjölþættar stuðningsþarfir falla nú utan skilgreiningarinnar nú þegar ríkið hefur tekið yfir ábyrgðina.

Við ítrekum að við undrumst vinnubrögð ríkisins við reglugerð um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir og teljum að með henni sé ríkið að brjóta samkomulag ríkis og sveitarfélaga um skýra ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda frá 19. mars 2025."

Ásdís Kristjánsdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

Hjördís Ýr Johnson

Orri Vignir Hlöðversson