Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Borgarlínan. Bakkabraut. Umsókn um framkvæmdaleyfi.

Málsnúmer: 2606579

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 50. fundur

Lögð fram að nýju umsókn Betri samgangna ohf. dags. 5. júní 2026 um framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð á legg 189, Bakkabraut, á norðanverðu Kársnesi frá og með gatnamótum Bakkabrautar og Vesturvarar að Fossvogsbrú. Uppdrættir dags. 23. júní 2025 og 1. desember 2025 uppfærðir 8. apríl 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. júní 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn dags. 13. júlí 2026.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. júlí 2026 og með vísan til 11. tl. 3. gr. viðauka IV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

Útgáfu framkvæmdaleyfis er vísað til skrifstofu bæjarritara. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis áður en það er gefið út skv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 48. fundur

Lögð fram umsögn Betri samganga ofh. dags. 5. júní 2026 um framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerðarlegg 180.09 (189), Bakkabraut. Uppdrættir dags. 23. júní 2025 og uppdrættir dags. 1. desember 2025 uppfærðir 8. apríl 2026,

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.