Fyrirspurn bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Sólveigar Skaftadóttur um upplýsingagjöf vegna framkvæmda í miðbæ Kópavogs.
Málsnúmer: 2607129
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 35. fundur
Lögð fram að nýju fyrirspurn bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Sólveigar Skaftadóttur dags. 2. júlí 2026 um upplýsingagjöf og stuðning við íbúa vegna framkvæmda í miðbæ Kópavogs.
Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 6. júlí 2026 var erindinu vísað til umsagnar umhverfissviðs. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs dags. 10. september 2026.
Lagt fram.
Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingarinnar telja svörin staðfesta að upplýsingagjöf og samráð við íbúa vegna framkvæmdanna hafi ekki verið fullnægjandi. Þrátt fyrir umfang og langan framkvæmdatíma liggur ekki fyrir sérstök samskipta- og upplýsingaáætlun og ekki er fyrirhugað að gera slíka áætlun þrátt fyrir yfirlýsingar um annað. Íbúar hafa ítrekað lýst óöryggi, skorti á upplýsingum og óvissu vegna framkvæmdanna. Þá hafa komið upp alvarleg atvik sem skapað hafa hættu fyrir íbúa og eignir og tímaáætlanir og upplýsingar um framkvæmdartíma ekki alltaf staðist. Það er ekki nóg að verkferlar séu til á pappír ef íbúar upplifa ekki öryggi í yfirstandandi ástandi. Tillaga Samfylkingarinnar um formlegan samráðsvettvang með íbúum var felld í bæjarráði. Í ljósi reynslunnar teljum við enn ríka ástæðu til að tryggja reglulegt samráð og eftirfylgni. Fulltrúar Samfylkingarinnar munu því óska eftir reglulegri stöðugjöf um framkvæmdirnar í bæjarráði.“
Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.
Bókun:
„Upplýsingagjöf og samskipti við íbúa og hagaðila hafa fengið töluverða umfjöllun í bæjarráði, nú síðast sl. fimmtudag og meirihlutinn tekur undir hvatningu fulltrúa Samfylkingarinnar um að bæjarráð sé uppfært reglulega um stöðu mála. Þó er mikilvægt að halda því til haga að upplýsingaflæði vegna framkvæmdanna, meðal annars með skilgreindum tengiliðum, upplýsingasíðum, póstlista, sérstöku netfangi og upplýsingafundum, hefur verið umtalsvert og starfsfólk Kópavogsbæjar hefur lagt sig fram um að stuðla að sem bestri upplýsingagjöf. Við teljum mikilvægt að byggja áfram á því starfi og þeim samskiptaleiðum sem þegar eru til staðar og efla þær eftir því sem verkefninu vindur fram. Áfram verði lögð áhersla á öfluga upplýsingagjöf, virkt samtal og að brugðist sé við ábendingum íbúa og annarra hagaðila.“
Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.
Fundarhlé hófst kl. 18:39, fundi fram haldið kl. 19:07.
02
Skipulags- og umhverfisráð - 31. fundur
Lögð fram fyrirspurn bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Sólveigar Skaftadóttur dags. 2. júlí 2026 um upplýsingagjöf og stuðning við íbúa vegna framkvæmda í miðbæ Kópavogs.
Vísað til umsagnar umhverfissviðs.