Fundargerð 630. fundar stjórnar SSH frá 06.07.2026
Málsnúmer: 2607582
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3260. fundur
Fundargerð 630. fundar stjórnar SSH frá 06.07.2026.
Lagt fram.
Bókun við dagskrárlið 5 í fundargerð SSH:
"Undirrituð fagnar þeirri innviðagreiningu sem unnin hefur verið fyrir hverfi höfuðborgarsvæðisins. Greiningin veitir mikilvæga yfirsýn yfir aðgengi íbúa að grunnþjónustu og getur nýst sveitarfélögunum vel við forgangsröðun framkvæmda og uppbyggingar.
Fyrir Kópavog gefa niðurstöðurnar tilefni til þess að skoða nánar aðgengi íbúa í einstökum hverfum að grunnþjónustu á borð við leik- og grunnskóla, bókasöfn, sundlaugar og hjúkrunarrými til að nefna nokkur atriði. Mikilvægt er að niðurstöður greiningarinnar verði nýttar við framtíðarskipulag sveitarfélagsins með það að markmiði að tryggja sem jafnast aðgengi íbúa að grunnþjónustu óháð búsetu."
Eydís Inga Valsdóttir
Bókun við dagskrárlið 6 í fundargerð SSH:
"Undirrituð vekur athygli á því að samkvæmt gögnum SSH hefur Kópavogur, einn sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, ekki afmarkað sérstakt svæði fyrir almenning vegna almyrkvans. Í öðrum sveitarfélögum er slíkt m.a. gert til að auðvelda skipulag og tryggja nauðsynlega aðstöðu.
Mikilvægt er að Kópavogsbær fari yfir hvort ástæða sé til að grípa til sambærilegra ráðstafana áður en viðburðurinn fer fram."
Eydís Inga Valsdóttir