Árshelmingsskýrsla Betri samgangna ohf. - júní 2026
Málsnúmer: 2607666
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3260. fundur
Frá SSH, dags. 08.07.2026, lagt fram til kynningar sex mánaða skýrsla Betri samgangna ohf.
Lagt fram.
Bókun:
"Árshelmingsskýrsla Betri samgangna vekur upp alvarlegar spurningar um fjármögnun, gagnsæi og ábyrgð við framkvæmd Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Þótt sveitarfélögunum sé ætlað að bera 12,5% af heildarfjármögnun sáttmálans hafa þau hingað til lagt fram um 27% af beinum framlögum. Miðflokkurinn óskar skýringa á þessu misræmi og hvort gert sé ráð fyrir að það jafnist síðar út með flýti- og umferðargjöldum. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefur ítrekað fullyrt að slík gjöld verði ekki innheimt í Kópavogi en hefur hvorki bókað gegn þeim né talað gegn þeim opinberlega og er engar undanþágur gagnvart Kópavogi að finna í neinum gögnum.
Kópavogsbúar finna nú fyrir óskiljanlegri hönnun nýrrar brúar á Arnarnesvegi. Meirihlutinn hefur vísað ábyrgðinni til Vegagerðarinnar þótt Kópavogsbær hafi sérstaklega samið um að flýta framkvæmdinni og notað hana sem rök fyrir samþykki Borgarlínu með tilheyrandi þrengingu að fjölskyldubílnum. Kópavogsbær hefur ekki beitt sér opinberlega fyrir skynsamari útfærslu brúarinnar. Færsla umferðarljósanna frá Ögurhvarfi að nýjum gatnamótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar leysir ekki umferðarvandann heldur færir hann.
Miðflokkurinn krefst skýringa á því hvers vegna meirihlutinn stóð ekki fastar í lappirnar gagnvart meintu ofríki Reykjavíkurborgar og hvort hann hyggist beita sér fyrir varanlegum úrbótum á umferðarflæði svæðisins."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Í samkomulagi Samgöngusáttmálans er gert ráð fyrir að ríkið fjármagni sinn hlut með flýti- og umferðargjöldum eða annarri fjármögnun. Bæjarstjóri Kópavogs hefur bent opinberlega á að eignasala sé ákjósanlegri kostur í þeim efnum fremur en flýti- og umferðargjöld.
Fullyrðing um að framkvæmdum við Arnarnesveg hafi verið flýtt til að koma Borgarlínu fyrir er ekki rétt, útfærslan lá fyrir á þarsíðasta kjörtímabili. Mikilvægt er að halda því til haga að Arnarnesvegurinn er mikilvæg samgöngubót fyrir efri byggðir og Kópavogsbúa alla. Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að endurskoða ljós við gatnamótin til að tryggja sem best flæði á þessum gatnamótum og hefur bæjarstjóri þegar sent ábendingar til Vegagerðarinnar um vanstillingu ljósanna."
Ásdís Krisjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Guðmundur Jóhann Jónsson
Elísabet Berglind Sveinsdóttir
Bókun:
"Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar leggja áherslu á mikilvægi þess að áfram verði unnið markvisst að framkvæmd samgöngusáttmála ríkis og sveitarfélaga. Mikilvægt er að sveitarfélögin haldi áfram góðu samstarfi og greiði leið verkefna svo óþarfa tafir verði ekki á framkvæmdum. Ljóst er að samgöngubætur eru meðal mikilvægustu innviðaverkefna höfuðborgarsvæðisins."
Eydís Inga Valsdóttir
Pétur Björgvin Sveinsson