Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Húsnæðisáætlun 2026

Málsnúmer: 2607771

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3260. fundur

Lögð fram til samþykktar bæjarráðs húsnæðisáætlum Kópavogsbæjar fyrir árið 2026.

Gestir viku af fundi kl. 9:11

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða húsnæðisáætlun 2026.


Bókun:

"Miðflokkurinn setur stórt spurningamerki við tilgang gerðar húsnæðisáætlunar. Lýsa þarf verulegum áhyggjum af þeirri hröðu fjölgun íbúa sem gert er ráð fyrir í húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar. Samkvæmt miðspá fjölgar íbúum um rúmlega 3.100 á næstu fimm árum og tæplega 6.500 á næstu tíu árum.

Innviðir bæjarins halda nú þegar illa í við uppbygginguna og sýnir þessi áætlun ekki breytingu þar á. Seinagangur og tafir hafa verið í uppbyggingu leik- og grunnskóla, þrátt fyrir fyrirsjáanlega fjölgun barna. Stækka og fjölga þarf skólum í takt við íbúafjölgun og er óboðlegt að bregðast ítrekað við með tímabundnum gámastofum í stað varanlegrar uppbyggingar.

Kópavogur hefur um árabil skilgreint sig sem íþróttabæinn Kópavog, en íþróttafélög bæjarins búa þegar við verulegan aðstöðuskort og eiga erfitt með að anna núverandi fjölda iðkenda.

Bærinn ætti því að hægja á nýrri íbúðauppbyggingu þar til raunhæf, fjármögnuð og tímasett innviðaáætlun liggur fyrir. Stækkun íþróttaaðstöðu í Versölum er löngu tímabær, hætta þarf að þrengja að HK í Kórnum og tryggja félaginu aukið svigrúm, hefja þarf markvissa uppbyggingu íþróttamannvirkja á félagssvæði Breiðabliks og lengi mætti áfram telja.

Ef Kópavogur á að vera áfram íþróttabær, þá þarf að sýna það í verki."

Einar Jóhannes Guðnason


Bókun:

"Meirihlutinn telur mikilvægt að tryggja fjölbreytta valkosti í húsnæðisuppbyggingu til að mæta þörfum íbúa og tryggja hagkvæmt húsnæðisverð. Í þessum áætlunum er gert ráð fyrir að þrjú ný hverfi rísi í Kópavogi sem eru síðustu lóðirnar sem eftir eru í landi Kópavogs. Mikilvægt er að vaxtamörk verði endurskoðuð þannig að bærinn geti vaxið í takt við fjölgun á höfuðborgarsvæðinu.

Órökstuddar fullyrðingar um að innviðir standi ekki undir þjónustu við bæjarbúa stenst enga skoðun.

Þá er mikilvægt að halda því til haga að samkvæmt þjónustukönnun Gallup er Kópavogsbær á hverju einasta ári að skora hæst meðal sveitarfélaga þegar kemur að aðstöðu til íþróttaiðkunar."

Orri Vignir Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Elísabet Berglind Sveinsdóttir

Guðmundur Jóhann Jónsson


Bókun:

"Miðflokkurinn leggur til að Kópavogsbær ræði beint við íþróttafélögin um aðstöðu þeirra og alvarlegar afleiðingar óhóflegar þéttingar fremur en Gallup. Þau myndu öll staðfesta það sem bent er á í fyrri bókun."

Einar Jóhannes Guðnason


Bókun:

"Kópavogsbær er í góðu samtali við íþróttafélög bæjarins, forgangsröðun hefur verið síðustu ár að byggja upp innviði til að bæta aðstöðu íþróttafélaga og fjárfestingar hlaupa á milljörðum.  Mikilvægt er að halda til haga að íbúa svara þjónustukönnun Gallup en ekki fyrirtækið sjálft."

Orri Vignir Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Elísabet Berglind Sveinsdóttir

Guðmundur Jóhann Jónsson


Bókun:

"Samfylkingin fagnar því að í húsnæðisáætlun Kópavogs sé lögð áhersla á fjölbreyttara húsnæðisframboð, aukið framboð smærri íbúða og eflingu almenna leigumarkaðarins. Jafnframt er jákvætt að áréttað sé að leita skuli leiða til að fjölga félagslegum íbúðum og sömuleiðis að skapa traustari umgjörð um almenna leigumarkaðinn og gera hann að raunverulegum valkosti til jafns við önnur búsetuform.

Samfylkingin telur þó mikilvægt að markmið áætlunarinnar endurspeglist í framkvæmd. Á undanförnum árum hafa ítrekaðar tillögur um uppbyggingu almenns leiguhúsnæðis, meðal annars af hálfu óhagnaðardrifinna leigufélaga, ekki hlotið brautargengi. Það vekur upp spurningar um hvernig sveitarfélagið hyggst ná þeim markmiðum sem sett eru fram í áætluninni.

Þá gefa ákveðnar forsendur áætlunarinnar tilefni til frekari skoðunar. Ef þörf fyrir námsmannaíbúðir er metin út frá því að engar slíkar íbúðir séu fyrir hendi er hætta á að skortur á þessu húsnæðisúrræði verði viðvarandi í stað þess að brugðist sé við honum. Ljóst er að eftirspurn er eftir námsmannaíbúðum í Kópavogi."

Eydís Inga Valsdóttir


Bókun:

"Fulltrúi Viðreisnar fagnar áherslu húsnæðisáætlunarinnar á fjölbreytt búsetuform, uppbyggingu minni íbúða, þéttingu byggðar og samgöngumiðað skipulag. Mikilvægt er að Kópavogur tryggi stöðugt og fyrirsjáanlegt framboð íbúða og að uppbygging húsnæðis, samgangna og grunnþjónustu haldist í hendur.

Mikilvægt er að áætlunin sé ekki bara orð á blaði heldur verði tryggt að farið verði í uppbyggingu á fjölbreyttu húsnæði fyrir ólíka hópa samfélagsins."

Pétur Björgvin Sveinsson