Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga Samfylkingar um að vinna fjárfestingaráætlun fyrir íþróttamannvirki og viðhald þeirra í Kópavogi

Málsnúmer: 2607872

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3260. fundur

Frá bæjarfulltrúum Samfylkingar, dags. 13.07.2026, lögð fram tillaga um að skipa starsfhóp sem ætlað er að vinna fjárfestingaráætlun fyrir íþróttamannvirki og viðhald þeirra í Kópavogi.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar bæjarstjóra.


Bókun:

"Miðflokkurinn tekur undir markmið tillögunnar um heildstæða fjárfestingar- og viðhaldsáætlun fyrir íþróttamannvirki í Kópavogi. Slík langtímasýn er löngu tímabær og samræmist þeim áhyggjum sem Miðflokkurinn hefur lýst af því að uppbygging íþróttainnviða haldi ekki í við fjölgun íbúa.

Verði starfshópurinn pólitískt skipaður telur Miðflokkurinn þó eðlilegt að tryggð verði aðkoma allra kjörinna stjórnmálaflokka í bæjarstjórn að vinnunni.

Einar Jóhannes Guðnason