Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur frá 28.10.2026

Málsnúmer: 2609042F

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1348. fundur

Fundargerð í 64 liðum.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 3270. fundur

Fundargerð í 64 liðum.

Lagt fram.


Bókun:

"Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar tekur undir bókun fulltrúa flokksins í Menningar- og mannlífsnefnd. Reglur menningarsjóðs eiga að gilda jafnt um alla umsækjendur, líka bæinn sjálfan. Tillagan um bæjarhátíð 2027 uppfyllti ekki þær kröfur, hvorki um dagskrá né fjárhagsáætlun.

Með þessari ráðstöfun fer stór hluti takmarkaðs sjóðs til eins verkefnis og minna verður eftir fyrir listafólk, félagasamtök og grasrótina í bænum, sem menningarsjóðnum er ætlað að styðja. Sjóðurinn var skorinn niður eftir hrun og hefur aldrei náð því framlagi sem reglur hans gera ráð fyrir. Ef meirihlutinn vill halda bæjarhátíð á að fjármagna hana sérstaklega í fjárhagsáætlun 2027, ekki taka féð af sjóði sem á að þjóna almennum umsækjendum. Samfylkingin mun jafnframt leggja áherslu á leiðréttingu sjóðsins við gerð fjárhagsáætlunar."

Eydís Inga Valsdóttir


Bókun:

"Samkvæmt erindisbréfi menningar- og mannlífsnefndar fer nefndin, í umboði bæjarstjórnar, með lista-, menningar- og mannlífsmál Kópavogsbæjar og er veiting styrkja úr lista- og menningarsjóði meðal verkefna hennar.

Meirihlutinn fagnar því að ráðstafa eigi sjö milljónum króna úr sjóðnum til bæjarhátíðar Kópavogs árið 2027. Hátíðinni er ætlað að efla menningar- og mannlíf í bænum og skapa sameiginlegan vettvang fyrir íbúa, félagasamtök, listafólk og menningarstofnanir. Markmiðið er að tengja saman þá fjölbreyttu menningarstarfsemi sem þegar fer fram í Kópavogi, auka sýnileika hennar og skapa ný tækifæri til þátttöku bæjarbúa í fjölbreyttum viðburðum."

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Orri Vignir Hlöðversson


Bókun:

"Undirrituð áréttar að Samfylkingin setur sig ekki upp á móti stofnun bæjarhátíðar Kópavogs, en gerir athugasemdir við að hún sé fjármögnuð úr menningarsjóð bæjarins. Betur færi að fjármunir úr sjóðnum færu í að styrkja sjálfstætt og frjálst menningarlíf, eins og sjóðnum er ætlað, en ekki menningarviðburði á vegum hins opinbera."

Eydís Inga Valsdóttir


Bókun:

"Í reglum lista- og menningarsjóðs Kópavogs segir að tekjum sjóðsins skuli m.a. varið til almennrar lista- og menningarstarfsemi í bæjarfélaginu. Þessi ráðstöfun er því að öllu leyti í samræmi við hlutverk sjóðsins."

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Orri Vignir Hlöðversson