Beint í efni
Til baka í fundargerðir

PISA 2025

Málsnúmer: 2609928

Ferill máls

01

Menntaráð - 165. fundur

Lögð fram til kynningar landsskýrsla PISA 2025.

Lagt fram.

Bókun:Menntaráð Kópavogsbæjar sameinast um að skora á Mennta- og barnamálaráðuneytið að veita sveitarfélögum viðeigandi stuðning svo unnt sé að efla skólakerfið. Menntaráð Kópavogsbæjar lýsir yfir fullum vilja til að taka höndum saman og vinna sameinuð að úrbótum börnunum í Kópavogi til heilla.


Bókun:Fulltrúar Viðreisnar og Samfylkingar vilja jafnframt draga fram þá staðreynd að sveitarfélögin geta sjálf leitað leiða til að bæta starfsumhverfi barnanna okkar.

Verkefni kennara og stjórnenda grunnskóla hafa orðið bæði fleiri og umfangsmeiri á undanförnum árum. Mikilvægt er að skipulag og stuðningur við skólana taki mið af þeirri þróun. Kennarar þurfa að hafa svigrúm til að sinna sínu kjarnahlutverki, að kenna, og stjórnendur þurfa að geta sinnt faglegri forystu og stuðningi við kennara. Þegar sífellt fleiri og umfangsmeiri verkefni bætast við skólastarfið án þess að skipulag og stuðningur fylgi þeirri þróun er hætta á að þessi grundvallarverkefni sitji á hakanum.

Það er hlutverk Kópavogsbæjar að styðja skólana þannig að öll börn fái raunveruleg tækifæri til náms. Nemendafjöldi á hvern kennara í umsjónarhópum hefur verið sá sami um árabil á mið- og unglingastigi skólanna. Á sama tíma hefur nemendahópurinn orðið fjölbreyttari og starfsaðstæður nemenda og kennara breyst. Við þessum áskorunum þarf að bregðast.

Það er á ábyrgð Kópavogsbæjar að tryggja skólaúrræði sem mæta þörfum allra barna. Biðlistar í sérskólaúrræði hjá Kópavogsbæ eru langir og börnum er vísað frá og gert að sækja þjónustu í sínum hverfisskóla, þótt það úrræði henti ekki alltaf þörfum barnsins. Hegðunarvandi, þar á meðal hættuleg hegðun, skapar jafnframt miklar áskoranir fyrir skóla bæjarins.

Nemendum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn hefur fjölgað í skólum bæjarins og niðurstöður úr milli mála-prófum hafa sýnt skýrt fram á þörf fyrir aukinn stuðning og fleiri kennslustundir til að efla íslenskukunnáttu og þátttöku nemenda í skólastarfinu.

María Ellen Steingrímsdóttir

Bryndís Rut Logadóttir

Björn Þór Rögnvaldsson


Umræða.