Menningar- og mannlífsnefnd - 9. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - formaður
- Jónas Skúlason - aðalfulltrúi
- Helga Hauksdóttir - varaformaður
- Margrét Vilborg Tryggvadóttir - aðalfulltrúi
- Indriði Ingi Stefánsson - aðalfulltrúi
- Ísabella Leifsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Vilborg Soffía Karlsdóttir
Ritari
- Soffía Karlsdóttir
Fundinn sat einnig Vigdís Jakobsdóttir verkefna- og viðburðastjóri menningarmála.
Dagskrá fundar
Improv Ísland, félagasamtök, sækja um 600.000 kr. styrk til að setja upp spunasýningar í Kópavogi sem efla menningarlíf, stuðla að skapandi listsköpun og auka þátttöku almennings.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina en getur því miður ekki styrkt verkefnið.
Vökufélagið - Félag Þjóðlistar sækir um 3.000.000 kr. styrk til að halda VAKA þjóðlistahátíð 2026 dagana 14. - 20. september 2026, þar sem lifandi hefðum verður fagnað með fjölbreyttum menningarviðburðum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og samþykkir að veita 750.000 króna styrk til hátíðarinnar.
Vökufélagið - Félag Þjóðlistar sækir um 3.000.000 kr. styrk til að halda VAKA þjóðlistahátíð 2025 dagana 15. - 21. september 2025, þar sem lifandi hefðum verður fagnað með fjölbreyttri dagskrá.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina en getur því miður ekki styrkt verkefnið.
Aikaterini Basdra sækir um 200.000 - 240.000 kr. styrk til að halda gagnvirka tónlistarverkstæðið „Litlu hljóðin“ fyrir leikskólabörn víðs vegar um Kópavog.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og vísar henni til frekari úrvinnslu hjá verkefna- og viðburðastjóra menningarmála.
Aikaterini Basdra sækir um 70.000 kr. styrk til að halda söngnámskeið fyrir fullorðna í Kópavogi þar sem þátttakendur fræðast um mannlega rödd og auka sjálfstraust sitt í söng.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina en vísar henni til frekari úrvinnslu hjá verkefna- og viðburðastjóra menningarmála.
Karlakór Kópavogs sækir um 500.000 kr. styrk til að styðja við starfsemi kórsins á komandi starfsári.
Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita 400.000 kr. styrk til kórsins fyrir árið 2026. Með úthlutuninni er gert ráð fyrir því að kórinn taki þátt í a.m.k. einum viðburði á vegum bæjarins árið 2026 í samráði við forstöðumann menningarmála.
Indriði Stefánsson sat ekki fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bragi Árnason sækir um 640.000 kr. styrk til að halda viðburðinn „Í blómadýrð í Guðmundarlundi“, þar sem hann og söngkonan Margrét Hannesdóttir bjóða upp á lifandi tónleika.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina en getur því miður ekki styrkt verkefnið.
Ísabella Leifsdóttir sat ekki fundinn undir þessum dagskrárlið.
Egill Árni Pálsson sækir um 1.200.000 kr. styrk til tónleikaraðarinnar „Brautryðjendur 5“, þar sem fjallað verður um þrjá brautryðjendur í óperusöng í máli og tónum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og samþykkir að veita 400.000 króna styrk til tónleikahaldsins.
Ísabella Leifsdóttir sat ekki fundinn undir þessum dagskrárlið.
Einstök börn sækja um 600.000 kr. styrk til að halda hannyrðakvöld, kvöldstund þar sem félagsmenn geta notið samveru og handavinnu í streitulausu umhverfi.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina en getur því miður ekki styrkt verkefnið.
Félag íslenskra píanóleikara sækir um 2.250.000 kr. styrk til að halda í annað sinn Alþjóðlega píanókeppni og sumarnámskeið í Salnum 4.- 16. ágúst 2026.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og samþykkir að veita 500.000 króna styrk til verkefnisins.
Hamraborg Festival sækir um 10.000.000 kr. til að halda Hamraborg Festival 2026 dagana 28. ágúst - 4. september með fjölbreyttum sýningum, gjörningum og vinnusmiðjum sem eru ókeypis og opin almenningi.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og samþykkir að veita 6.500.000 króna styrk til hátíðarinnar. Nefndin leggur jafnframt til að gerður verði þriggja ára samningur við hátíðina til að festa hana í sessi og felur forstöðumanni menningarmála að fylgja því á eftir.
Ingibjörg Fríða Helgadóttir sækir um 520.000 kr. styrk til að halda Klappleikjasmiðjur - fjölskylduvænar tónlistarsmiðjur á laugardögum þar sem þátttakendur læra og njóta klappleikja.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og vísar henni til frekari úrvinnslu hjá verkefna- og viðburðastjóra menningarmála.
Iva Franjic sækir um 345.000 kr. styrk til verkefnisins „Bound by Hand - The Art of Bookbinding in Kópavogur“, sem er samfélagslegt listverkefni þar sem þátttakendur læra hefðbundna bókbandstækni.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og vísar henni til frekari úrvinnslu hjá verkefna- og viðburðastjóra menningarmála.
Aikaterini Basdra sækir um 500.000 kr. styrk til tónleikaraðarinnar „Songs of Nature“, þar sem sópransöngkonur flytja efnisskrá sem sameinar klassísk verk og þjóðlög frá Evrópu.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og vísar henni til frekari úrvinnslu hjá verkefna- og viðburðastjóra menningarmála.
Kársnesskóli sækir um 2.000.000 kr. styrk til að halda veglega tónlistarhátíð í Salnum í tilefni af 50 ára afmæli Skólakórs Kársness.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og samþykkir að veita 400.000 króna styrk til kórsins.
Kraðak ehf. sækir um 6.150.248 kr. styrk til að breyta Guðmundarlundi í Jólalund alla sunnudaga fyrir aðventu og bjóða upp á fjölskylduvæna jóladagskrá með ævintýraverum, jólasveinum, ratleik og föndri.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina en getur því miður ekki styrkt verkefnið.
Kvennakór Kópavogs (sem frá 2025 nefnist Kvennakórinn Blika) sækir um 500.000 kr. styrk til starfsemi á árinu 2026.
Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita 400.000 kr. styrk til kórsins fyrir árið 2026. Með úthlutuninni er gert ráð fyrir því að kórinn taki þátt í a.m.k. einum viðburði á vegum bæjarins árið 2026 í samráði við forstöðumann menningarmála.
Leikfélag Kópavogs sækir um 2.000.000 kr. styrk til að setja upp þrjú leikverk á næsta leikári, þar af tvö ný íslensk verk og einn erlendan farsa.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og samþykkir að veita 400.000 króna styrk til Leikfélagsins.
Leikhópurinn Lotta sækir um 150.000 kr. styrk til að sýna fjölskyldusöngleiki víða um land, þar á meðal í Kópavogi.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina en getur því miður ekki styrkt verkefnið.
Lísa Anne Libungan sækir um 360.000 kr. styrk til verkefnisins „Líf í hafinu“, skapandi fræðsluverkefnis fyrir fjölskyldur í Kópavogi þar sem hafið lifnar við í gegnum list og fræðslu.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og vísar henni til frekari úrvinnslu hjá verkefna- og viðburðastjóra menningarmála.
Magnús Pálsson sækir um 280.000 kr. styrk fyrir viðburðinn „Dunandi sveifla í Kópavogi“, tónleika- og danskvöld til að endurvekja stemningu sveiflutónlistar og -dans frá millistríðsárunum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og samþykkir að veita 280.000 króna styrk til verkefnisins.
María Jónsdóttir sækir um 1.100.000 kr. styrk til tónleikaraðarinnar „Momento mei / Mundu mig“, þar sem þrjár kvenraddir sameinast í nýju þverflautu og píanói verkefni á vegum Cantus Feminarum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina en getur því miður ekki styrkt verkefnið.
Elísabet Sveinsdóttir og Ísabella Leifsdóttir sátu ekki fundinn undir þessum dagskrárlið.
Menningarfélagið Milla ehf. sækir um 900.000 kr. styrk til að standa fyrir „Queer Situations“, alþjóðlegri hinsegin bókmenntahátíð í Salnum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og samþykkir að veita 500.000 krónur til viðburðarins.
Norræna félagið í Reykjavík sækir um 800.000 kr. styrk til verkefnis sem tengist degi Norðurlanda 2026, þar sem stefnt er að menningarsamstarfi við vinabæ Kópavogs í Óðinsvéum í Danmörku.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina en getur því miður ekki styrkt verkefnið.
Prinsessur ehf. sækir um 305.000 kr. styrk til að bjóða upp á fjöltyngdar sögustundir í Bókasafni Kópavogs, þar sem ævintýrapersónur úr barnasögum vakna til lífsins á mismunandi tungumálum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og vísar henni til frekari úrvinnslu hjá verkefna- og viðburðastjóra menningarmála.
Prinsessur ehf. sækir um 443.000 kr. til að halda ókeypis páskaeggjaleit fyrir börn í Guðmundarlundi um páskana 2026, með fjöltyngdum ævintýrapersónum, leikjum og þrautum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina en getur því miður ekki styrkt verkefnið.
Samkór Kópavogs sækir um 500.000 kr. styrk til að styðja við starfsemi kórsins árið 2026.
Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita 400.000 kr. styrk til kórsins fyrir árið 2026. Með úthlutuninni er gert ráð fyrir því að kórinn taki þátt í a.m.k. einum viðburði á vegum bæjarins árið 2026 í samráði við forstöðumann menningarmála.
Sarimar Films ehf. sækir um 3.000.000 kr. styrk til að framleiða kvikmyndina „200 Kópavogur“ í leikstjóran Gríms Hákonarsonar.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina en getur því miður ekki styrkt verkefnið.
Skátafélagið Kópar sækir um 500.000 kr. styrk til að halda fjölskylduvæna sumarhátíð við skátaheimilið á Sumardaginn fyrsta (23. apríl 2026) í tilefni af fyrsta degi sumars og 80 ára afmæli félagsins.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og samþykkir að veita kr. 400.000 til hátíðarhalda Skátanna á Sumardaginn fyrsta 2026. Nefndin leggur jafnframt til að gerður verði þriggja ára samningur við Skátana til að festa árlega hátíð á Sumardaginn fyrsta í sessi og felur forstöðumanni menningarmála að fylgja því á eftir.
Sögufélag Kópavogs sækir um 500.000 kr. styrk til að halda margvíslega fræðsluviðburði á árinu, meðal annars myndgreiningarmorgna, fræðslugöngur, fræðslufundi og sýningar á heimildamyndum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og samþykkir að veita kr. 400.000 til Sögufélagsins. Nefndin leggur jafnframt til að gerður verði þriggja ára samningur við Sögufélagið til að festa starfsemi félagsins í sessi og felur forstöðumanni menningarmála að fylgja því á eftir.
Stefán Atli Rúnarsson sækir um 350.000 kr. styrk til fræðsluviðburðaraðarinnar „ChatGPT og skapandi hugsun“ í Bókasafni Kópavogs, þar sem íbúar fá tækifæri til að kynnast gervigreind sem skapandi tæki.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina en getur því miður ekki styrkt verkefnið.
Töframáttur tónlistar sf. sækir um 300.000 kr. styrk til tónleikaraðarinnar „Töframáttur tónlistar“, sem miðar að því að færa tónlistarupplifun til fólks sem glímir við geðraskanir, félagslega einangrun og/eða öldrun og á erfitt með að sækja hefðbundna tónleika.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina og samþykkir að veita 300.000 króna styrk til verkefnisins.
Ygallery ehf. sækir um 2.000.000 kr. styrk til að halda sjö myndlistarsýningar árið 2026 í bensínstöð Olís í Hamraborg, þar sem boðið verður upp á nútímamyndlist í samstarfi við menningarstofnanir.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar fyrir umsóknina en getur því miður ekki styrkt verkefnið.