Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menningar- og mannlífsnefnd - 5. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - formaður
  • Jónas Skúlason - aðalfulltrúi
  • Helga Hauksdóttir - varaformaður
  • Margrét Vilborg Tryggvadóttir - aðalfulltrúi
  • Indriði Ingi Stefánsson - aðalfulltrúi
  • Ísabella Leifsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Vilborg Soffía Karlsdóttir

Ritari

  • Soffía Karlsdóttir

Dagskrá fundar

01

Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

Óskað er eftir 200.000 króna styrk til tveggja tónskálda vegna smíði nýrra verka sem flutt verða á útgáfutónleikum Dúó Freyju í Salnum á þessu ári.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita Dúó Freyju kr. 200.000 vegna smíði tveggja nýrra tónverka.

02

Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

Lionsklúbbur Kópavogs óskar eftir styrk að upphæð kr. 500.000 til kaupa og varðveislu á kvikmynd Marteins Sigurgeirssonar um Kópavogsbúið og endurbyggingu þess.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita Lionsklúbbi Kópavogs kr. 250.000 til kaupa og varðveislu á kvikmyndinni, með hjásetu Margrétar Tryggvadóttur og Indriða Inga Stefánssonar.

03

Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

Ástráður, kynfræðslufélag læknanema, óskar eftir styrk að upphæð kr. 250.000 vegna fræðsluverkefnis fyrir menntaskólanema.

Menningar- og mannlífsnefnd getur ekki orðið við beiðninni.

04

Endurskoðuð stofnskrá Náttúrufræðistofu Kópavogs.

Tillögur að breytingum að stofnskrá Náttúrufræðistofu Kópavogs.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir framlagða stofnskrá. Nefndin leggur jafnframt til að Náttúrusafn Kópavogs verði í daglegu tali og öllu markaðsefni nefnt Náttúrusafnið.

05

Fyrirspurn um styttur í bæjarlandinu

Svar við fyrirspurn Indriða Inga Stefánssonar um útilistaverk í bæjarlandinu.

Lagt fram.

06

Bæjarlistamaður Kópavogs 2025

Val á Bæjarlistamanni Kópavogs 2025.

Menningar- og mannlífsnefnd hefur komist að samkomulagi um val á bæjarlistamanni og verður tilkynnt um valið föstudaginn 23. maí.