Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menningar- og þróunarráð - 19. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Una Björg Einarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Garðar Heimir Guðjónsson - aðalfulltrúi
  • Helga Guðrún Jónasdóttir - aðalfulltrúi
  • Sveinn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Pétur Krogh Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Ýr Gunnlaugsdóttir - aðalfulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Dagskrá fundar

01

Styrkir úr lista- og menningarsjóði

Farið yfir umsóknir um styrkveitingar.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

02

Kópavogsbær - Kópavogshæli

Formaður leggur til að Garðar Guðjónsson verði fulltrúi ráðsins í starfshópi um skipulag, umhverfi og nýtingu Kópavogstúns og bygginga á svæðinu.

Ráðið samþykkir að Garðar Guðjónsson verði fulltrúi þess í hópnum.

03

Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024

Menningar- og þróunarráð þarf að fara yfir aðalskipulagið og veita umsókn um menningarmálin.

Ráðið gerir ekki athugasemdir við skipulagið.

04

Stefnumótun í ferðamálum.

Lögð fram tillaga um framhald þessara vinnu.

Tillagan samþykkt.

05

Menningarstofanir

Greint frá heimsóknum ráðsmanna í menningarhús bæjarins.

06

Öryggismál í safnahúsi.

Greint frá öryggismálum í safnahúsinu á menningartorfunni.

Ráðið beinir því til framkvæmdaráðs bæjarins að leita lausna á öryggismálum í safnahúsinu. Hjálmar Hjálmarsson leggur fram eftirfarandi fyrirspurn: Hver er kostnaður við öryggisgæslu á menningarstofnunum?

07

Tillaga um stofnun atvinnu- og markaðsstofu Kópavogs.

Garðar Guðjónsson, Pétur Ólafsson og Ýr Gunnlaugsdóttir leggja fram tillögu að stofnun atvinnu- og markaðsstofu Kópavogs.

Afgreiðslu tillögunnar frestað til næsta fundar.

08

Ljóðasamkeppnin Jón úr Vör.

Deildarstjóra menningar- og þróunardeildar falið að kanna kostnað við að koma ljóðum keppninnar í strætó.

Fyrirspurn til bæjarstjóra vegna átakshóps um atvinnumál

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 9. júní 2011 tillögu menningar- og þróunarráðs um skipan fimm manna átakshóps um atvinnumál (sjá einnig fundargerð menningar- og þróunarráðs 6. júní 2011). Hópinn skyldu skipa tveir atvinnufulltrúar, skrifstof