Ljóðasamkeppnin Jón úr Vör.
Málsnúmer: 0912646
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 111. fundur
Ljóðstafur Jóns úr Vör.
Lista- og menningarráð samþykkir að hækka framlag til ljóðahátíðar Jóns úr Vör fyrir árið 2021.
02
Lista- og menningarráð - 109. fundur
Afhending ljóðstafs Jóns úr Vör
Samkvæmt niðurstöðu dómnenfdar var Björk Þorgrímsdóttur afhentur Ljóðstafur Jóns úr Vör við hátíðlega athöfn i Salnum. Í öðru sæti var Freyja Þórsdóttir og í þriðja sæti Elísabet Jökulsdóttir. Ingimar Örn Hammer Haraldsson nemandi í 7. bekk Álfhólsskóla var hlutskarpastur í grunnskólakeppninni. Dómnefnd skipuðu Bjarni Bjarnason formaður, Ásta Fanney Sigurðardóttir og Magnús Sigurðsson.
03
Lista- og menningarráð - 37. fundur
Ráðið staðfestir tillögu dómnefndar um að verðlaunaféð verði tvöfaldað að ári. Ráðið ákveður jafnframt að setja reglur fyrir keppnina og leggja fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
04
Lista- og menningarráð - 36. fundur
Niðurstaða dómnefndar kynnt. Í henni eru Sindri Freysson og Gunnþórunn Guðmundsdóttir. Þórdís Björnsdóttir sagði sig úr nefndinni af persónulegum ástæðum.
Lista- og menningarráð fellst á niðurstöðu dómnefndar.
05
Lista- og menningarráð - 35. fundur
Forstöðumaður Listhúss gerði grein fyrir því að frestur til að senda inn ljóð rennur út 21. desember. Í dómnefnd eru Sindri Freysson og Gunnþórunn Guðmundsdóttir. Sú hefði hefur skapast að hver sitji í dómnefnd í þrjú ár. Hugmyndir að þriðja dómnefndarfulltrúanum ræddar.
06
Lista- og menningarráð - 16. fundur
Hafsteinn Karlsson verði boðaður á næsta fund til að ræða hans sýn á ljóðasamkeppnina.
07
Lista- og menningarráð - 12. fundur
Rætt um möguleikana á því að hátíðin verði veglegri í framtíðinni.

<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>

08
Lista- og menningarráð - 11. fundur
Lista- og menningarráð fagnar miklum áhuga landsmanna á ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör. Ráðið bindur vonir við að fleiri grunnskólanemendur taki þátt í ljóðasamkeppni grunnskólanna á næsta ári.
09
Lista- og menningarráð - 10. fundur
Ljóðasamkeppnin hefur verið auglýst í fjölmiðlum og grunnskólar hvattir til að taka þátt í ljóðasamkeppni grunnskólanna. Velja þarf nýja dómnefnd.
Nöfnum velt upp og deildarstjóra falið að vinna að málinu áfram.
10
Menningar- og þróunarráð - 20. fundur
Rætt um að setja verðlaunaljóð í strætó.
Ráðið samþykkir að áfram verði unnið með þess hugmynd og hún tengd Kópavogsdögunum.
11
Menningar- og þróunarráð - 19. fundur
Deildarstjóra menningar- og þróunardeildar falið að kanna kostnað við að koma ljóðum keppninnar í strætó.
12
Menningar- og þróunarráð - 17. fundur
Farið yfir keppnina og niðurstöður.
Ráðið er ánægt með framkvæmd keppninnar í ár en ræddi leiðir til að gera veg hennar meiri að ári.
13
Menningar- og þróunarráð - 16. fundur
Dagskráin fyrir hátíðarhöldin 21. janúar lögð fram.

14
Menningar- og þróunarráð - 15. fundur
Formaður og deildarstjóri menningar- og þróunarráðs geri tillögu að dagskrá og leggi fyrir næsta fund.
15
Menningar- og þróunarráð - 12. fundur
Formaður og varaformaður ráðsins leggja fram tillögu að fyrirkomulagi keppninnar.
Tillaga að fyrirkomulagi keppninnar samþykkt.
16
Menningar- og þróunarráð - 11. fundur
Drög að reglum um ljóðasamkeppni grunnskólabarna lögð fram og rædd.

Samþykkt að menningar- og þróunarráð efni til ljóðasamkeppni grunnskólanema í tengslum við ljóðasamkeppnina Ljóðstafur Jóns úr Vör. Formanni og varaformanni ráðsins falið að útfæra fyrirkomulag keppninnar nánar og leggja fyrir næsta fund menningar- og þróunarráðs.

17
Menningar- og þróunarráð - 10. fundur

Ákveðið að auglýsa eftir ljóðum. Starfsmanni falið að halda utan um það.

18
Lista- og menningarráð - 348. fundur

Deildarstjóri gerði grein fyrir undirbúningi og væntanlegum störfum dómnefndar.