Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menningar- og þróunarráð - 12. fundur

í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hafsteinn Karlsson - formaður
  • Hjálmar Hjálmarsson - aðalfulltrúi
  • Garðar Heimir Guðjónsson - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
  • Helga Guðrún Jónasdóttir - aðalfulltrúi
  • Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Eiríkur Ólafsson - varafulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Málefni Bókasafns Kópavogs 2011

Forstöðumaður Bókasafns Kópavogs, Hrafn Andrés Harðarson, og forstöðumaður Lindasafns, Margrét Sigurgeirsdóttir, kynntu starfsemi safnsins.

Ráðið þakkar góða <FONT face=Calibri>kynningu og beinir því til undirbúningshóps vegna húsnæðismála bókasafnsins að vinna að því að finna góða lausn á húsnæðismálum safnsins.</FONT>

Almenn mál

02

Rekstrarstyrkur til Leikfélags Kópavogs samkvæmt samningi

Forsvarsmenn félagsins Hörður Sigurðarson og Bjarni Guðmarsson fóru yfir starfsemi félagsins á liðnu ári.

<P style="MARGIN: 0cm 0cm 10pt" class=MsoNormal><FONT face=Calibri>Ráðið telur að LK hafi á liðnu starfsári fullnægt öllum ákvæðum rekstrarsamningsins og vel það og samþykkir þar með afgreiðslu styrksins. </FONT></P><P style="MARGIN: 0cm 0cm 10pt" class=MsoNormal><FONT face=Calibri>Ráðið beinir þeirri fyrirspurn til bæjarstjórnar hvort leitað hafi verið leiða til að lækka greiðslubyrði af húsnæði LK. </FONT></P>

Almenn mál

03

Endurskoðun reglna lista- og menningarsjóðs.

Nýjar reglur lagðar fram.

Samþykktar.

Almenn mál

04

Skýrsla frá Skólahljómsveit Kópavogs vegna styrks.

Lögð fram.

Almenn mál

05

Beiðni um afnot af Salnum án endurgjalds fyrir styrktartónleika.

Ráðið getur því miður ekki orðið við þessari beiðni.

Almenn mál

06

Ljóðasamkeppni grunnskólanema.

Formaður og varaformaður ráðsins leggja fram tillögu að fyrirkomulagi keppninnar.

Tillaga að fyrirkomulagi keppninnar samþykkt.

Almenn mál

07

Framtíðarhópur SSH

Bæjarráð óskar eftir umfjöllun ráðsins um skýrslur framtíðarhópsins um atvinnumál. Þær lagðar fram til kynningar.

Frestað.

Almenn mál

08

Punk-hátíð í Kópavogi

Lögð fram samantekt frá forsvarsmanni hátíðarinnar, Valgarði Guðjónssyni, en lista- og menningarráð styrkti hátíðina að upphæð 400 þúsund kr. Styrkurinn var samþykktur undir lok síðasta árs.