Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menningar- og þróunarráð - 18. fundur

í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Una Björg Einarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Garðar Heimir Guðjónsson - aðalfulltrúi
  • Helga Guðrún Jónasdóttir - aðalfulltrúi
  • Sveinn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Pétur Krogh Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Ýr Gunnlaugsdóttir - aðalfulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Karen Halldórsdóttir einróma samþykkt sem formaður og Una Björg Einarsdóttir einróma samþykkt sem varaformaður.

Ákveðið að hitta forstöðumenn stofnana á næsta fundi, í hádeginu 6. mars, þar sem þeir myndu kynna starfsemi sína.

Dagskrá fundar

01

Umsóknir um styrki úr lista- og menningarsjóði

Umsóknarfrestur rann út 14. febrúar.

Ráðið velur hóp til að fara yfir umsóknir um styrki úr lista- og menningarsjóði. Hópurinn leggur fyrir næsta fund ráðsins tillögur að úthlutun. Í hópnum eru Karen Halldórsdóttir, Una Björg Einarsdóttir og Pétur Ólafsson.

02

Skipun fulltrúa ráðsins í vinnuhóp um stöðu safnfræðslumála.

Helga Guðrún Jónasdóttir verður fulltrúi ráðsins í þessum hópi.

03

Kópavogsbær - Kópavogshæli

Skipa þarf fulltrúa ráðsins í starfshóp um skipulag, umhverfi og nýtingu Kópavogstúns og bygginga á svæðinu.

<P>Afgreiðslu málsins frestað.</P>

04

Stefnumótun í ferðamálum

Rætt um framhald vinnu hóps sem settur var saman á síðasta fundi til að varpa skýrara ljósi á vinnuna sem framundan er.

Ákveðið að hópurinn haldi áfram með þessa vinnu.