Menntaráð - 2. fundur
í Fannborg 6, fundarherbergi 3. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Friðriksdóttir - formaður
- Ólafur Örn Karlsson - aðalmaður
- Helgi Magnússon - aðalmaður
- Sverrir Óskarsson - aðalmaðurBoðaði forföllSverrir Óskarsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Ragnhildur Reynisdóttir - aðalmaður
- Helga María Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Gísli Baldvinsson - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
- Sigrún Bjarnadóttir - fulltrúi skólastjóra
- Arnar Björnsson - foreldrafulltrúi
Starfsmenn
- Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður menntasviðs
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
Ritari
- Ragnheiður Hermannsdóttir
Dagskrá fundar
Boðað var til sameiginlegs fundar allra fastanefnda á Menntasviði Kópavogs, til að kynna drög að lýðheilsustefnu Kópavogsbæjar sem lögð voru fram til umsagnar á 112. fundi skólanefndar þann 5.desember sl.
Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir verkefnastjóri greindi frá með hvaða hætti upplýsingaöflun og útvinnsla fyrirliggjandi gagna fór fram, og þeim verkferlum sem stýrihópur verkefnisins fylgdi við framsetningu á fyrirliggjandi drögum að lýðheilsustefnu Kópavogs.
Að lokinni kynnningu Sigríðar Kristínar verkefnisstjóra var fundarmönnum gefinn kostur á fyrirspurnum sem og að koma á framfæri athugasemdum varðandi fyrirliggjandi drög.
Almennar umræður.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Boðað var til sameiginlegs kynningarfundar fastanefnda Menntasviðs á niðurstöðum rannsóknar fyrirtækisins Rannsókn og Greining, sem gerð var meðal nemenda í 8., 9., og 10. bekk grunnskólans árið 2016.
- Ungt fólk 2016, Lýðheilsa ungs fólks í Kópavogi -.
Á fundinn kom Margrét Lilja Guðmundsdóttir fulltrúi R&G og kynnti helstu niðurstöður rannsóknarinnar.
Almennar fyrirpurnir og umræður
Lagt fram.