Menntaráð - 15. fundur
í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Friðriksdóttir - formaður
- Ólafur Örn Karlsson - aðalmaður
- Helgi Magnússon - aðalmaður
- Ragnhildur Reynisdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllRagnhildur Reynisdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Helga María Hallgrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gísli Baldvinsson - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
- Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
- Hreiðar Oddsson - aðalfulltrúi
- Ágúst Frímann Jakobsson - fulltrúi skólastjóra
- Þorvar Hafsteinsson - foreldrafulltrúi
Starfsmenn
- Ragnheiður Hermannsdóttir
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir
Ritari
- Ragnheiður Hermannsdóttir
Menntaráð þakkar Sigrúnu Bjarnadóttur, skólastjóra glæsilegar veitingar og kynningu á metnaðarfullum þróunar- og nýbreytniverkefnum sem verið er að vinna í skólanum. Einnig þakkar menntaráð Snorra Páli Þórðarsyni, forstöðumanni félagsmiðstöðvar skólans, góða og upplýsandi kynningu á starfsemi félagsmiðstöðvarinnar.
Dagskrá fundar
Skýrsla vinnuhóps um skil skólastiga lögð fram. Máli frestað frá fyrra fundi.
Menntaráð mælir með að menntasvið vinni framkvæmdaráætlun út frá tillögum sem birtast í skýrslu. Þegar í stað verði hafin vinna við tilraunaverkefni milli leik- og grunnskóla í einu hverfi bæjarins. Menntasvið upplýsi menntaráð reglulega um verkefni.
Umbótaáætlun og lokaskýrsla Kópavogs vegna bókunar 1 í kjarasamningi FG og SNS lögð fram til kynningar.
Kynntar voru helstu niðurstöður og framkvæmdaráætlun Kópavogsbæjar í skýrslunni.
Svar við fyrirspurn um sjávarútvegssýningu lagt fram.
Svar við fyrirspurn lagt fram.
04
Frá foreldrum og forráðamönnum barna í 2. bekk í Vatnsendaskóla varðandi ástand dægradvalar skólans
Bréf frá foreldrum lagt fram.
Menntaráð felur menntasviði að svara erindi foreldra í samræmi við drög að bréfi sem fyrir liggur.
05
Fyrirspurn frá Helgu Maríu Hallgrímsdóttur um stöðu flóttamenn sem Kópavogur tók á móti 2016
Helga María Hallgrímsdóttir, fulltrúi Framsóknar óskar eftir upplýsingum um stöðu nemenda sem komu í Kópavog sem kvótaflóttamenn í byrjun árs 2016, stuðning við þá í menntakerfinu og hvernig þeir og fjölskyldur þeirra hafi aðlagast skólasamfélaginu.
Máli frestað til næsta fundar.
Dagskrá forvarnarviku lögð fram.
Nefndarmenn eru boðnir velkomnir á viðburði.