Menntaráð - 117. fundur
í Kópavogsskóla
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hanna Carla Jóhannsdóttir - formaður
- Jónas Haukur Thors Einarsson - aðalmaður
- Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Donata Honkowicz Bukowska - aðalmaður
- Einar Örn Þorvarðarson - áheyrnarfulltrúi
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllSvava Halldóra Friðgeirsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Tryggvi Felixson - aðalmaður
- Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
- Karen Rúnarsdóttir - foreldrafulltrúi
- Guðný Sigurjónsdóttir - fulltrúi skólastjóra
Starfsmenn
- Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
Ritari
- Ragnheiður Hermannsdóttir
Fundarmenn samþykkja að fundur sé lögmætur þrátt fyrir að fundardagskrá hafi ekki borist öllum fundarmönnum á tilsettum tíma. Fundarmenn höfðu aðgang að fundargögnum á réttum tíma inn á fundarmannagáttu og höfðu fengið sent fundarboð án dagskrár áður.
Menntaráð þakkar Guðnýju Sigurjónsdóttur, skólastjóra Kópavogsskóla fyrir móttökurnar, góðar veitingar og kynningu á skólanum
Dagskrá fundar
Niðurstöður á endurskoðun á vinnustund kynntar.
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir, mannauðsstjóri Kópavogs kynnti nýtt fyrirkomulag á vinnustund fyrir kennara í grunnskólum sem samþykkt var í bæjarstjórn 20. júlí 2023 og komu til framkvæmdar í grunnskólum 15. ágúst 2023.
Ársskýrslur skólaþjónustu og skýrsla um stuðning við nemendur með annað móðurmál en íslensku fyrir skólaárið 2022 -2023 lagðar fram og kynntar.
Máli frestað til næsta fundar.
Svar við erindi lagt fram.
Menntaráð felur sviðsstjóra menntasviðs að svara erindi frá trúnaðarmanni Hörðuvallaskóla.
Gestir
- Pálmi Þór Másson - mæting: 00:00
Erindibréf lagt fram til umræðu.
Pálmi Þór Másson, sviðstjóri stjórnsýslusviðs, fór yfir erindisbréf menntaráðs og svaraði fyrirspurnum fundarmanna. Nefndarmenn ræddu í kjölfarið hlutverk ráðsins samkvæmt erindisbréfi og samstarf nefnda menntasviðs.